Álrisar beðnir um álit á stjórnarskrá Íslands 6. apríl 2009 19:10
Stjórnarskrárnefnd óskaði eftir því að fulltrúar þriggja erlendra stórfyrirtækja veittu umsögn um stjórnarskrá Íslands. Fróðir menn minnast þess ekki að slíkt hafi áður verið gert. Ákvæði um auðlindir í þjóðareign er í frumvarpi til stjórnarskrár sem rætt hefur verið þindarlaust á Alþingi Íslendinga undanfarið. Þetta er umdeilt. Sérnefnd Alþingis um stjórnarskrármál óskaði eftir umsögnum ýmissa um frumvarpið, og þar með auðlindaákvæðið. Orkufyrirtæki voru í þessum hópi, en líka álfyrirtæki. Nefndin óskaði eftir því að Alcan-Ríó Tintó segði sitt álit á frumvarpinu, einnig Alcoa og Norðurál. Þessi fyrirtæki eru öll í eigu erlendra aðila að mestu eða öllu leyti, og eru móðurfélög þeirra skráð erlendis, eða í erlendum kauphöllum. Menn sem kunnugir eru stjórnarskrármálum, kannast ekki við að erlendiri aðilar, eða fulltrúar þeirra, hafi fyrr veitt umsögn um stjórnskipunarlög íslenska lýðveldisins. Raunar minnast menn eins tilviks, sem varðaði mannréttindakafla stjórnarskrárinnar sem kom inn árið 1995. Þá voru yfirþjóðlegar stofnanir kallaðar til skrafs. Sumir benda raunar á að þetta þurfi ekki að vera óeðlilegt, ef viðkomandi eigi hagsmuna að gæta; í þessu geti verið fólgini tilraun til að komast að afstöðu þeirra sem höndla með náttúruauðlindir. Björn Bjarnarson, einn fulltrúa sjálfstæðisflokksins í nefndinni, kannast ekki við að ósk um að álfyrirtækin segðu skoðun sína á frumvarpinu hefði komið frá sjálfstæðismönnum. Þeir hefðu fengið lista yfir umsagnaraðila frá formanni nefndarinnar. Ekki hefur náðst í formanninn, Valgerði Sverrisdóttur, en mikið var reynt í dag. Hvorki Alcan né Alcoa sendu nefndinni umsögn um frumvarpið. Það gerði hins vegar Norðurál. Félagið er að níu tíundu í erlendri eigu. Norðurál segir í umsögninni að texti auðlindaákvæðis mætti vera skýrari en telur að öðru leyti ekki ástæðu til að fjalla frekar um frumvarpið.
Mest lesið Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira