Gísli Marteinn: Gef alltaf upp til skatts þegar ég fæ borgað 4. júní 2009 13:16 Gísli Marteinn í ræðustól. MYND/Stefán
Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sem fór í laxveiðiferð á vegum Glitnis til Rússlands segir að hlutverk sitt í ferðinni hafi verið að annast veislustjórn. DV vekur athygli á málinu í dag en ferðin var farin sumarið 2007. Aðspurður hvort hann hafi fengið greitt fyrir viðvikið segist Gísli ekki vera með það á hreinu en að hann telji þó að svo hafi ekki verið. „Alltaf þegar ég fæ borgað fyrir svona uppákomur gef ég það upp til skatts. Í þessu tifelli held ég að ferðin sjálf og uppihaldið hafi verið það sem ég fékk fyrir viðvikið. Það hefur verið almenna reglan í þessu þegar veislustjórar eru að fara á atburði erlendis eins og á árshátíðir íslendingafélaga til dæmis," segir Gísli. Aðspurður hvort hann þurfi að greiða hlunnindaskatt af slíku fyrirkomulagi segist Gísli ekki hafa álitið að slíkt eigi við í tilvikum sem þessum. Gísli segist hafa verið veislustjóri oftar en hann geti komið tölu á í gegnum árin. Þegar hann er spurður hvort það sé við hæfi að stjórnmálamenn standi í slíku, segist Gísli alveg vera til í að taka þá umræðu. „Ég hef hins vegar aldrei séð neinn hagsmunaárekstur í því, þvert á móti. Mér finnst þetta mjög skemmtilegt og alveg síðan ég var í sjónvarpinu hef ég töluvert oft verið beðinn um að gera þetta. Ég er fenginn í þetta til þess að halda uppi góðri stemmningu og ef ég tel mig geta gert það sómasamlega er ég til í það," segir Gísli Marteinn að lokum.
Mest lesið Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Sjá meira