Dugar í eina sprengju á ári 18. nóvember 2009 05:00 Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti á tali við íranskan þingmann.fréttablaðið/AP
Í nýrri skýrslu Alþjóðakjarnorkueftirlitsins segir að Íranar hafi flutt háþróaðan tæknibúnað til auðgunar úrans á stað sem áður var leynilegur. Vinnsla þar eigi að hefjast árið 2011. Í skýrslunni, sem er sjö blaðsíður, segir að nýja kjarnorkustöðin eigi að geta framleitt um eitt tonn af auðguðu úrani á ári. Það myndi duga í eina kjarnorkusprengju, en er of lítið til að fullnægja þörfum nánast fullbúins kjarnorkuvers í Bushehr og annarra kjarnorkuvera sem Íranar segjast ætla að nota í friðsamlegum tilgangi á næstu árum. Í skýrslunni segir að Íranar hafi komið sér upp 8.600 skilvindum til auðgunar úrans, en einungis 4.000 þeirra séu í notkun. Þeir hafi nú þegar framleitt um 1.800 kíló af auðguðu úrani, sem dugar næstum því í tvær kjarnorkusprengjur. Ali Asghar Soltanieh, kjarnorkufulltrúi Írans, segir skýrsluna sýna að eftirlitsmennirnir hafi engar sannanir fundið fyrir því að Íranar hafi í hyggju að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Íranar hleyptu vestrænum eftirlitsmönnum ekki inn í landið til þess að skoða kjarnorkustöðina fyrr en upp komst um tilvist hennar í sumar. Að Íranar hafi starfrækt hana með leynd vekur hins vegar áhyggjur um að fleiri leynilegar kjarnorkustöðvar kunni að vera að finna í landinu.- gb
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Sjá meira