Vélréttindi - ný fræðigrein innan lögfræðinnar Atli Steinn Guðmundsson skrifar 18. nóvember 2009 08:55 „Nú leita ég réttar míns!“
Samfélög heimsins þurfa fyrr en síðar að ákveða hvaða mannréttindi þau hyggjast veita vélmennum að mati lögfræðings við háskólann í San Diego. Það er Anna Russel við San Diego-háskólann sem teflir fram þeirri skoðun sinni að eftir því sem bilið milli véla og manna minnki þurfi mennirnir hreinlega að gera það upp við sig hvar þeir standi gagnvart vélmennum. Einhverjum detta kvikmyndirnar um tortímandann þegar í hug og sjá fyrir sér hörkulega ásjónu ríkisstjóra Kaliforníu sem gerði þann myndaflokk ódauðlegan enda kemur ekki á óvart að breska blaðið Telegraph hafi einmitt valið að myndskreyta frétt sína um málið með honum. Russel segir að fyrr eða síðar komi að því að vélmenni heimsins taki að krefjast ákveðinna réttinda, gervigreind vaxi nú fiskur um hrygg sem aldrei fyrr og réttarkerfi þeirra samfélaga sem nýti sér krafta vélmenna muni á einhverjum tímapunkti neyðast til að skilgreina hvar vélarnar standi lagalega séð gagnvart mönnum. Þróuð vélmenni sem orðin séu meðvituð um sjálf sig muni að lokum krefjast slíkrar skilgreiningar. Þessi fyrirheit hljóma ef til vill óhugnanlega en Russel skirrist þó ekki við að setja þau fram í grein í tímaritinu Computer Law and Security Review. Þar bendir hún meðal annars á að fyrr á þessu ári hafi vélrænir vísindamenn, búnir þeim eiginleika að geta hugsað og dregið ályktanir, komið fram á sjónarsviðið. Russel klykkir út með því að benda á að einhvern tímann komi að því að vélmennin muni krefjast kynferðislegs frelsis og hvað gerist þá?
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Sjá meira