Innlent

Hestaeigandi sakar yfirvöld um einelti

Valur Grettisson skrifar
Gerðar voru athugasemdir við urðun hestanna. Mynd tengist ekki fréttinni.
Gerðar voru athugasemdir við urðun hestanna. Mynd tengist ekki fréttinni.

„Í desember fargaði ég fimm hrossum. Vegna frosta náði ég ekki að grafa þau alveg niður," segir Sæmundur Tryggvi Halldórsson á Miklagarði í Borgarbyggð en Héraðsdýralæknir og búfjáreftirlitsmaður Búnaðarsamtaka Vesturlands hafa gert alvarlega athugasemdir við aðbúnað hrossa í hans eigu.

Í skýrslu sem þeir sendu meðal annars sýslumanni og sveitarstjóra Borgarbyggðar segir orðrétt:

"Nú þegar við fórum blasti við okkur mörg dauð hross í skurði sem hálfpartinn hafði verið grafið yfir og hræ af folaldi hafði verið troðið niður við heyrúllur sem gefnar höfðu verið. Hræ af einu hrossi var einnig í skurði sem fullur var af vatni."

Sæmundur neitar ekki að lýsingin sé nærri lagi. Hann segir að það hafi sést í nokkrar lappir. Hrossin hafi hinsvegar verið urðuð fyrir þann tíma sem héraðsdýralæknir og búfjáreftirlitsmaður settu sem er 28. maí.

„Já, ég myndi segja að þetta kæmi mér á óvart," segir Sæmundur spurður hvort þessi skýrsla komi þá flatt upp á hann.

Að auki er gerð athugasemd við fóður í skýrslunni. Þar segir að ein heyrúlla hafi verið fyrir hestana en það hafi verið mjög lélegt fóður. Þessu hafnar Sæmundur alfarið.

Hann viðurkennir fyrir blaðamanni að ein meri hafi ekki verið í nógu góðu ástandi.



Sæmundur Tryggvi Halldórsson.

„Hún lenti í sjálfheldu fyrr í vetur en við héraðsdýralæknirinn vorum sammála um að hún væri að taka vel fóðrum" segir Sæmundur um horuðu merina.

„Það er bara verið að níðast á mér," segir Sæmundur um málið allt. Hann segir að lengi hafi héraðsdýralæknir níðst á sér og það lýsir því helst að í hvert sinn sem hestar fara á vergang þá sé honum kennt um það.

Það var síðast á mánudaginn sem hann var kallaður í sveitina til þess að sækja hross í sinni eigu. Hann hafi átt nokkur hross sem þar voru. Hann heldur því fram að restin hafi meðal annars verið í eigu utanbæjarmanns sem á land við hliðina á honum.

„Það er mjög oft haft samband við mig vegna lausagöngu hrossa en oft eru þau í eigu þessa aðkomumanns," segir Sæmundur og bætir jafnframt við að tveir af hestar séu innan hans girðingar núna. Hestarnir eru illa haldnir að hans sögn en enginn hefur gert tilkall til þeirra. Sæmundi grunar að þeir tilheyri einnig nágranna sínum.

„Ég benti nú Gunnari Gauta [Gunnarssyni, Héraðsdýralæknis á Vesturlandi] á að ef það fréttist að skepna dræpist á öðru landi þá væri ráðist strax á mig. Það er ekkert sagt við ábúendur annarra bæja," segir Sæmundur sem er ósáttur við meintar ofsóknir yfirvalda.

Sæmundur segir reiður að það hefði verið lítið mál fyrir yfirvöld að smala saman hestunum og taka þau út. Af þeim fjörtíu hrossum sem hann á þá ami ekkert að þeim utan merina sem lenti í sjálfheldunni.

„Þeir hefðu betur gert það áður en þeir hlupu með þetta í fjölmiðla," segir Sæmundur svo ákveðinn að lokum.

Sæmundur andmælti ekki skýrslu Héraðsdýralæknis og búfjáreftirlitsmanns en frestur til þess rann út 25. maí. Ekki er ljóst hvert framhald málsins verður en alvarleg athugasemd var meðal annars send til sýslumannsins í Borgarnesi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×