Hestaeigandi sakar yfirvöld um einelti Valur Grettisson skrifar 27. maí 2009 14:30 Gerðar voru athugasemdir við urðun hestanna. Mynd tengist ekki fréttinni. „
Í desember fargaði ég fimm hrossum. Vegna frosta náði ég ekki að grafa þau alveg niður," segir Sæmundur Tryggvi Halldórsson á Miklagarði í Borgarbyggð en Héraðsdýralæknir og búfjáreftirlitsmaður Búnaðarsamtaka Vesturlands hafa gert alvarlega athugasemdir við aðbúnað hrossa í hans eigu. Í skýrslu sem þeir sendu meðal annars sýslumanni og sveitarstjóra Borgarbyggðar segir orðrétt: "Nú þegar við fórum blasti við okkur mörg dauð hross í skurði sem hálfpartinn hafði verið grafið yfir og hræ af folaldi hafði verið troðið niður við heyrúllur sem gefnar höfðu verið. Hræ af einu hrossi var einnig í skurði sem fullur var af vatni." Sæmundur neitar ekki að lýsingin sé nærri lagi. Hann segir að það hafi sést í nokkrar lappir. Hrossin hafi hinsvegar verið urðuð fyrir þann tíma sem héraðsdýralæknir og búfjáreftirlitsmaður settu sem er 28. maí. „Já, ég myndi segja að þetta kæmi mér á óvart," segir Sæmundur spurður hvort þessi skýrsla komi þá flatt upp á hann. Að auki er gerð athugasemd við fóður í skýrslunni. Þar segir að ein heyrúlla hafi verið fyrir hestana en það hafi verið mjög lélegt fóður. Þessu hafnar Sæmundur alfarið. Hann viðurkennir fyrir blaðamanni að ein meri hafi ekki verið í nógu góðu ástandi. Sæmundur Tryggvi Halldórsson. „Hún lenti í sjálfheldu fyrr í vetur en við héraðsdýralæknirinn vorum sammála um að hún væri að taka vel fóðrum" segir Sæmundur um horuðu merina. „Það er bara verið að níðast á mér," segir Sæmundur um málið allt. Hann segir að lengi hafi héraðsdýralæknir níðst á sér og það lýsir því helst að í hvert sinn sem hestar fara á vergang þá sé honum kennt um það. Það var síðast á mánudaginn sem hann var kallaður í sveitina til þess að sækja hross í sinni eigu. Hann hafi átt nokkur hross sem þar voru. Hann heldur því fram að restin hafi meðal annars verið í eigu utanbæjarmanns sem á land við hliðina á honum. „Það er mjög oft haft samband við mig vegna lausagöngu hrossa en oft eru þau í eigu þessa aðkomumanns," segir Sæmundur og bætir jafnframt við að tveir af hestar séu innan hans girðingar núna. Hestarnir eru illa haldnir að hans sögn en enginn hefur gert tilkall til þeirra. Sæmundi grunar að þeir tilheyri einnig nágranna sínum. „Ég benti nú Gunnari Gauta [Gunnarssyni, Héraðsdýralæknis á Vesturlandi] á að ef það fréttist að skepna dræpist á öðru landi þá væri ráðist strax á mig. Það er ekkert sagt við ábúendur annarra bæja," segir Sæmundur sem er ósáttur við meintar ofsóknir yfirvalda. Sæmundur segir reiður að það hefði verið lítið mál fyrir yfirvöld að smala saman hestunum og taka þau út. Af þeim fjörtíu hrossum sem hann á þá ami ekkert að þeim utan merina sem lenti í sjálfheldunni. „Þeir hefðu betur gert það áður en þeir hlupu með þetta í fjölmiðla," segir Sæmundur svo ákveðinn að lokum. Sæmundur andmælti ekki skýrslu Héraðsdýralæknis og búfjáreftirlitsmanns en frestur til þess rann út 25. maí. Ekki er ljóst hvert framhald málsins verður en alvarleg athugasemd var meðal annars send til sýslumannsins í Borgarnesi.
Tengdar fréttir Dauð hross í skurði og folald troðið niður við heyrúllu Héraðsdýralæknir og búfjáreftirlitsmaður Búnaðarsamtaka Vesturlands hafa gert alvarlegar athugasemdir við aðbúnað hrossa á tveimur bæjum í á Mýrum í Borgarnesi. 27. maí 2009 12:39 Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Fleiri fréttir Telur ólíklegt að Evrópusambandið muni „hefna sín“ á Íslandi Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Sjá meira
Dauð hross í skurði og folald troðið niður við heyrúllu Héraðsdýralæknir og búfjáreftirlitsmaður Búnaðarsamtaka Vesturlands hafa gert alvarlegar athugasemdir við aðbúnað hrossa á tveimur bæjum í á Mýrum í Borgarnesi. 27. maí 2009 12:39