Veggjakrotari skaut tvo í Mexíkó Óli Tynes skrifar 19. september 2009 18:56
Mexíkóskur veggjakrotari skaut í dag tvo menn til bana þegar athugasemdir voru gerðar við krot hans. Eftir snarpan skotbardaga við lögregluna var hann særður og yfirbugaður. Veggjakrotarinn var að athafna sig í neðanjarðarlestarstöð í Mexíkóborg þegar aðvífandi lögreglumaður stuggaði við honum. Krotarinn dró þá upp skammbyssu og skaut hann til bana. Einnig vegfaranda sem reyndi að stöðva hann. Þvínæst stökk maðurinn inn í opinn lestarvagn og hélt skothríðinni áfram. Hann særði þá fimm manns til viðbótar. Skelfingu lostnir farþegar æddu út úr lestarvagninum og reyndi að forða sér. Meðan maðurinn skaut á fólkið hrópaði hann að hann hefði ekkert á móti því persónulega, hann væri aðeins á móti ríkisstjórninni. Fleiri lögreglumenn þustu á vettvang og það hófst snarpur skotbardagi. Byssumaðurinn varð fyrir skoti og eftir það gat lögreglan yfirbugað hann. Hann var fluttur á brott í sjúkrabíl. Lögreglan segir að maðurinn heiti Louis Castillo og sé þrjátíu og átta ára gamall. Engin skýring hefur verið gefin á viðbrögðum hans. Yfirvöld í Mexíkó eiga í blóðugu stríði við gengi eiturlyfjabaróna en skotárásir eins og þessi eru sjaldgæfar í höfuðborginni. Lögreglustjóri borgarinnar segir að eittþúsund lögreglumenn til viðbótar verði sendir til að hafa eftirlit með lestarstöðvum og að þeir muni hafa heimild til þess að leita á fólki ef þeim sýnist svo.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira