Áminna ekki vegna úrvinda flugmanna 16. mars 2009 06:30 Flugmenn þotu sem var að koma úr sólarlandaferð til Tyrklands voru örþreyttir eftir sautján tíma vakt þegar lent var við vond skilyrði að næturlagi á Keflavíkurflugvelli í lok október 2007.
Engin áminning var veitt vegna brota flugfélagsins Jet-X á reglum um hvíldartíma flugmanna þegar þota félagsins endaði utan brautar á Keflavíkurflugvelli haustið 2007. Þetta kemur fram í svörum Flugmálastjórnar til Fréttablaðsins. Alls voru 188 farþegar og átta manna áhöfn um borð í þotu Jet-X þegar hún rann út af braut í lendingu í Keflavík aðfaranótt 28. október 2007. Vélin var að koma úr leiguflugi til Tyrklands. Vakt flugmannanna var orðin lengri en reglur leyfðu, meðal annars vegna tafa við brottför og vegna millilendingar til eldsneytistöku í Skotlandi. Ísing var á brautinni. Eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu telur rannsóknarnefnd flugslysa að þreyta hafi þjakað flugmennina enda hafi þeir sjálfir kvartað undan mikilli þreytu 40 mínútum fyrir lendingu í Keflavík. Vaktin hjá þeim varð á endanum 17 klukkustundir og 20 mínútur. „Ekki var talin ástæða til þess að gefa út formlega áminningu til Jet-X vegna þessa atviks, en félagið ákvað að nýta ekki áfram ákvæði um lengda flugvakt með aukinni áhöfn í kjölfar málsins,“ upplýsir Flugmálastjórn sem kveðst hafa farið ítarlega yfir málið með forsvarsmönnum Jet-X og skoðað framkvæmd þessara mála hjá fyrirtækinu. „Í kjölfar þessa atviks gaf Flugmálastjórn út skýringarefni til íslenskra flugrekenda í flutningaflugi um með hvaða hætti flugrekendur skuli uppfylla ákvæði reglugerðar um flug- og vinnutímamörk og hvíldartíma flugáhafna sem var í gildi á þeim tíma sem óhappið átti sér stað.“ Rannsóknarnefnd flugslysa gerði einnig athugasemdir við viðbúnað á jörðu niðri, meðal annars vegna hreinsunar flugbrauta og viðnámsmælinga. Aðspurð segist Flugmálastjórn ekki hafa gert athugasemdir við vinnulag og búnað á Keflavíkurflugvelli í kjölfar atviksins með Jet-X þotuna. Vetrarhreinsun og viðnámsmælingar á flugvöllum séu teknar út reglulega og búast megi við að nýjar rannsóknir á viðnámsmælingum leiði til þess að nýjar kröfur og leiðbeiningar komi fljótlega fram. Spurð um hversu algengt það sé að hvíldartími flugmanna sé ekki virtur svarar Flugmálastjórn að það heyri til undantekninga. Í reglugerð sem gilt hafi þegar Jet-X þotunni hlekktist á komi fram að hægt sé að lengja flugvakt upp að ákveðnum mörkum eigi sér stað ófyrirséðar aðstæður í flugstarfi. Reglulegar úttektir séu á rekstri íslenskra flugfélaga, meðal annars á flug- og vinnutímamörkum og hvíldartíma flugáhafna. gar@frettabladid.is
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Fleiri fréttir Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Sjá meira