Byssu beint að Íslendingi í vopnuðu ráni í Danmörku 11. febrúar 2009 20:45 Lögreglubifreið fyrir utan húsnæði gullsmiðsins Ole Lynggaard í morgun þar sem Jóhannes Ottósson starfar. MYND/Ekstra Bladet
Jóhannes Ottósson, 33 ára gamall gullsmiður, varð fyrir þeirri óskemmtilegu lífreynslu í dag að vopnað rán var framið á vinnustað hans í Kaupmannahöfn. Skammbyssu var beint að andliti hans. Tveir menn dulbúnir sem póstburðarmenn komust inn á skrifstofu fyrirtækisins og höfðu í hótunum við starfsmenn þess. Jóhanns hefur búið í Danmörku í átta ár með eiginkonu sinnu. Þar af seinustu sex ár við nám hjá hjá gullsmiðnum Ole Lynggaard og síðar sem starfsmaður. Fyrirtækið er einn stærsti framleiðandinn á sínu sviði í Skandinavíu með yfir 70 starfsmenn. Ræningjarnir þekktu vel til Myndavélar eru utan á húsnæði gullsmiðsins og er þeim meðal annars beint að eina inngangnum í húsið. Jóhannes segir að starfsfólk á skrifstofunni hafi ekki kannast við póstburðarmennina og því hafi samstarfsmaður hans tekið sér stöðu við neyðarhnapp þegar þeir komu inn. „Um leið og þeir komu inn sást að þeir voru með grímur þannig að hún þrýsti á takkann en þá fékk hún byssu í andlitið." Jóhannes segir að fjórir aðrir starfsmenn hafi verið skrifstofunni sem hafi verið hótað og grýtt fram og til baka. „Ræningjarnir vissu greinlega hvar allt var því þeir gengu beint að peningaskápnum sem í voru hlutir sem voru tilbúnir," segir Jóhannes. Ræningjarnir voru með bláa burðarpoka úr IKEA sem þeir fylltu af tilbúnum vörum. „Þá fékk ég byssuna í andlitið" Á meðan á þessu stóð var Jóhannes staddur á verkstæðinu við vinnu sína. „Ég þurfti að fara upp á skrifstofu að ljósrita og þegar ég gekk inn voru þeir að klára að tæma skápinn. Þá rífur annar þeirra burðarpokann með sér, hleypur öskrandi á móti mér og skipar mér að leggjast niður annars deyi ég. Hinn kom strax á eftir honum og þá fékk ég byssuna í andlitið." Jóhannes segir atburðinn hafa vera súrelískan og eitthvað sem hann hafi alls ekki átt von á að upplifa sjálfur þrátt fyrir að hafa margoft horft á keimlík atriði í kvikmyndum. Ræningjarnir komust undan Í framhaldinu hlupu ræningjarnir út. Jóhannes vill ekki gefa upp heildarverðmæti ránsfengsins. Ræningjarnir komust undan á stolinni silfurgrárri BMW bifreið sem fannst skömmu síðar mannlaus. Leit lögreglu af þeim hefur ekki borið árangur. Jóhannes segir að eðli málsins hafi dagurinn litast af ráninu. Hann kveðst vera afar þakklátur danska kerfinu því innan við tveimur tímum eftir ránið var búið að veita starfsfólkinu fyrstu hjálp og sálfræðingur mættur á vinnustaðinn.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira