Innlent

Viðræður halda áfram

MYND/Anton

Forsvarsmenn Samtaka Atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands sem funda í Karphúsinu ásamt Ríkissáttasemjara ætla að halda áfram viðræðum um að koma á stöðugleikasáttmála í þjóðfélaginu. Báðir aðilar hafa lýst miklum vonbrigðum með vaxtalækkun Seðlabankans frá því í gær og eru sammála um að hún hafi verið allt of lítil.

Samtök Atvinnulífsins setja þann fyrirvara við framhald viðræðnanna að Seðlabankinn hafi lækkað stýrivextina fyrir 1. júlí næstkomandi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×