Hæstiréttur klofinn í kynferðisbrotamáli 13. júlí 2009 22:00 Hæstiréttur Íslands.
Hæstiréttur Íslands klofnaði varðandi farbannsúrskurð yfir bandarískum karlmanni sem er gefið að sök að hafa haft samræði við konu með blekkingum. Úrskurður um farbann var felldur úr gildi en Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson voru sammála því að farbann væri of íþyngjandi aðgerð fyrir manninn sem var hér á landi sem ferðamaður þegar brotið á að hafa átt sér stað. Þriðji dómarinn, Viðar Matthíasson skilaði inn sérákvæði þar sem stóð að hann teldi að maðurinn ætti að vera áfram í farbanni. Jón Steinar skilaði einnig séráliti þar sem hann tíundaði ástæður þess að hann væri sammála Ólafi Berki um að Bandaríkjamaðurinn ætti ekki að sæta áframhaldandi farbanni sem hefur verið í gildi síðan um miðjan maí. Athygli vekur að í rökum Jóns Steinar kemur fram að hann telji að ekki sé fyrir hendi rökstuddur grunur um að maðurinn hafi orðið uppvís af því sem hann hefur verið ákærður fyrir. Ástæðuna telur hann vera að enginn sé til frásagnar nema maðurinn og konan. Orðrétt segir í dómnum: „Ekki verður séð að unnt sé með frekari sönnunarfærslu að renna stoðum undir staðhæfingar kæranda um villu sína, þar sem hún og varnaraðili eru ein til frásagnar um það sem gerðist. Er að mínum dómi óhjákvæmilegt að taka tillit til þess, þegar metið er hvort grunur á hendur varnaraðila teljist rökstuddur í skilningi nefnds lagaákvæðis, þannig að skilyrði séu til að beita hann enn þeirri þvingun sem felst í farbanni. Tel ég að ekki geti talist um slíkan grun að ræða og því séu ekki fyrir hendi skilyrði til að fallast á kröfu sóknaraðila." Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 7. júlí síðastliðinn.
Mest lesið Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Erlent Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Innlent Fleiri fréttir Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum Sjá meira