Innlent

Fyrstu viðbrögð Breta og Hollendinga eru varfærin

Alistair Darling, fjármálaráðherra.
Alistair Darling, fjármálaráðherra.

Fyrstu viðbrögð Breta við fréttum þess efnis að Alþingi hafi samþykkt ríkisábyrgð vegna Icesave samningana með ákveðnum fyrirvörum eru varfærin.

Í frétt Reuters er haft eftir talsmanni breska fjármálaráðuneytisins að þar á bæ styðji menn við fyrirheit Íslendinga um að borga skuldir sínar.

Engu að síður þurfi Bretar að fara nákvæmlega yfir þá fyrirvara sem settir hafi verið af hálfu Íslendinga áður en frekari afstaða verði tekin til málsins.

Talskona hollenska fjármálaráðuneytisins tekur í svipaðan streng. „Við bíðum nú eftir viðbrögðum frá íslensku ríkisstjórninni sem eru viðsemjendur okkar í málinu,“ sagði talskonan.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×