Greiðslurnar tólffaldast á milli ára 22. ágúst 2009 08:30 Tæplega 16 þúsund manns eru nú skráðir á atvinnuleysisskrá. Vinnumálastofnun greiddi út rúmlega tólf og hálfan milljarð króna fyrstu sex mánuði ársins. Það er 71 prósent þeirrar upphæðar sem sjóðnum var áætlað fyrir árið í fjárlögum. fréttablaðið/gva
Rúmlega tólf og hálfur milljarður króna var greiddur út í atvinnuleysisbætur fyrstu sex mánuði ársins. Þetta þýðir að kostnaður við atvinnuleysisbætur var rúmlega 69 milljónir á dag. Sömu sex mánuði í fyrra var rúmur milljarður greiddur út. Greiðslurnar tólffölduðust því á milli ára. „Það er engum blöðum um það að fletta að þetta er gífurlega mikil breyting,“ segir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar. „Við erum oft og tíðum að borga svipað á mánuði nú og við gerðum í heilt ár á meðan góðærið var.“ Í fjárlögum ársins 2009 er gert ráð fyrir rúmum sautján og hálfum milljarði króna í atvinnuleysisbætur. Fór 71 prósent þeirrar upphæðar í greiðslur fyrstu sex mánuði ársins. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir sjóðinn þó fara langleiðina með að standa undir útgjöldum ársins. „Það kemur til af því að við áttum inni frá fyrri árum. Svo skilar sér tryggingagjald, iðgjaldagreiðslur atvinnulífsins, í sjóðinn. Það hækkaði 1. júlí,“ segir hann. „Á næsta ári mun innistæðan tæmast, og fjármögnunin mun ekki dekka það mikla atvinnuleysi sem fyrirsjáanlegt er á næsta ári, nema að hluta. Það rjátlast í sjóðinn alltaf, á meðan einhverjir eru að greiða laun í landinu.“ Gissur segir þó að ekki megi setja málin þannig upp að þegar sjóðurinn tæmist verði hætt að borga. „Þá er tvennt til ráða. Annars vegar að hækka skattinn á atvinnulífið enn meira, sem er nú kannski ekki mjög ráðlegt, eða að ríkisvaldið hlaupi undir bagga, eins og búið er að gera undanfarin ár með ábyrgðar-sjóð launa til dæmis. Þetta er bara úrvinnsluefni ríkisfjármála hvernig fjármögnunin er tryggð.“ Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segist vona að sjóðurinn dugi út þetta ár. „En það er alveg á hreinu að við munum ekki láta hann komast í vanda. það verður staðið á bak við það fram í rauðan dauðann að hann geti greitt út bætur og það er augljóst að þá þarf að koma til viðbótarfjármagn úr ríkissjóði ef hans tekjustofnar duga ekki til.“ Meðalatvinnuleysi þennan fyrri helming ársins var 8,3 prósent. Á sama tíma í fyrra var það eitt prósent. Í fyrra námu grunnatvinnuleysisbætur um 136 þúsund krónum, en sú upphæð var hækkuð um síðustu áramót í tæpar 150 þúsund krónur. Fyrstu þrjá mánuði atvinnuleysis eru bæturnar tekjutengdar. Þær nema þó aldrei hærri upphæð en 242 þúsundum. Gissur segir tekjutenginguna ekki svo dýra fyrir sjóðinn. „Það eru einhver hundruð milljóna, ekki milljarðar. Það er fyrst og fremst fjöldi atvinnulausra sem skýrir þetta ástand.“ thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent Fleiri fréttir Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Sjá meira