Innlent

Slapp ómeiddur úr bílveltu á Þrengslavegi

Ökumaður slapp ómeiddur þegar að hann velti bíl sínum í Skógarhlíðabrekku á Þrengslavegi um sexleytið í morgun. Maðurinn gaf lögreglunni á Selfossi þær skýringar á veltunni að bleyta og ísíng hefði verið á veginum.

Þá var ökumaður tekinn fyrir of hraðan akstur rétt fyrir ofan kambana. Lögreglan segir að maðurinn hafi keyrt á 130 kílómetra hraða á klukkustund og ekki í góðu ástandi til aksturs.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×