Erlent

Bítlunum ætlað að rífa upp söluna

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Miklar vonir eru bundnar við nýjan tölvuleik um Bítlana.
Miklar vonir eru bundnar við nýjan tölvuleik um Bítlana.

Tónlistar- og tölvuleikjaiðnaðurinn í Bretlandi og Bandaríkjunum reiðir sig nú á gamla félaga til að rífa upp sölutölur á lokafjórðungi ársins, nefnilega Bítlana fornfrægu frá Liverpool. Í dag kemur út tölvuleikur tileinkaður Bítlunum auk þess sem EMI-útgáfan hleypir af stokkunum safni sem samanstendur af öllum 13 plötum Bítlanna, endurhljóðblönduðum með stafrænni tækni nútímans. Sala á tóndiskum dróst saman um 19 prósent í Bandaríkjunum á síðasta ári og vonast kaupmenn í tónlistarbransanum til að Bítlaútgáfan nái að hressa upp á sölutölur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×