Kærður fyrir að aka snjótroðara á mann 9. september 2009 05:30 snjótroðari Snjótroðarar eru nokkurra tonna ferlíki, eins og sjá má á myndinni. Þar er þó ekki um að ræða umræddan snjótroðara á Langjökli heldur troðara úr Bláfjöllum sem er málinu óviðkomandi. Hvorugur mannanna vildi tjá sig um málið í gær.
Afar sérstætt líkamsárásarmál hefur verið kært til lögreglunnar á Selfossi. Karlmaður hefur kært annan mann fyrir að aka á sig á snjótroðara uppi á jökli, þannig að meiðsl hlutust af. Meint líkamsárás með snjótroðaranum átti sér stað síðastliðinn föstudag. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins á málið rætur sínar að rekja töluvert langt aftur í tímann. Mennirnir tveir sem um ræðir sameinuðu fyrirtæki sín um jöklaferðir fyrir nokkru síðan. Það samstarf gekk ekki upp þannig að leiðir skildu og sá sem fór út úr fyrirtækinu stofnaði eigið fyrirtæki. Ekki undu allir sáttir eftir samvinnuslitin því í febrúar setti sá, sem nú telur sig hafa orðið fyrir árásinni, sig í samband við lögreglu. Kvað hann fyrrverandi samstarfsaðilann hafa ætlað að fljúga á sig og berja sig þar sem þeir hittust á förnum vegi í Reykjavík. Hann hefði náð að halda manninum frá sér þannig að ekkert hefði orðið úr barsmíðunum. Bað hann um að atvikið yrði bókað hjá lögreglu sem var gert. Þá hafa staðið deilur um slóð sem menn nota í sleðaferðum með ferðamenn upp á Langjökul. Er deilt um hvort eitthvert eitt ferðaþjónustufyrirtæki hafi meiri rétt til þess að nota slóðina en önnur. Atvikið á föstudaginn varð með þeim hætti, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins, að sá sem kveðst hafa orðið fyrir líkamsárásinni var að hefja ferð upp á jökul með starfsfólk og ferðamenn. Þá hafi hinn ákærði verið búinn að leggja snjótroðaranum, svo og stórum trukk, þvert á slóðina. Einhver samskipti hafi mennirnir tveir átt vegna þessa. Ökumaður troðarans hafði þá snúið tækinu á punktinum með þeim afleiðingum að maðurinn fékk högg á bakið við herðablaðið og þeyttist flatur eftir ísnum. Hann hafi hlotið áverka en snjótroðaramaðurinn ekið í hasti á brott. Maðurinn lagði fram kæru til lögreglu í fyrradag. jss@frettabladid.is
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Fleiri fréttir Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Sjá meira