Niðurskurður hjá dómstólum gæti haft alvarlegar afleiðingar Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. október 2009 12:13 Stefán Már Stefánsson lagaprófessor segir nauðsynlegt að gera breytingar í þágu dómstólanna. Mynd/ Stefán.
Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor við Háskóla Íslands, segir nauðsynlegt að fjölga dómurum, aðstoðarmönnum þeirra og öðru starfsfólki dómstóla. Verði fjárveitingar til dómstóla skornar niður eins og gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2010 án þess að gerðar verði skipulags- og fjárhagsráðstafanir verði afleiðingarnar alvarlegar. Í aðsendri grein í Morgunblaðinu bendir Stefán Már á að helstu afleiðingarnar yrðu þær að mál sem komi til dómstólana verði ekki tekin til meðferðar og þau afgreidd innan eðlilegs tíma. Þau bíði einfaldlega í biðröð sem verði að teljast óviðunandi. „Þannig munu aðilar einkamála og sakborningar í sakamálum þurfa að bíða von úr víti í óvissu um réttarstöðu sína. Að auki munu dómstólar ekki leysa úr ágreiningsefnum og eyða réttaróvissu sem óhjákvæmilega rís sem afleiðing efnahaghrunsins. Slíkt réttarkerfi er ófullnægjandi og telst annmarki á réttarríkinu," segir Stefán Már. Auk þess að fjölga dómurum og starfsfólki dómstóla vill Stefán kanna hvort unnt sé að fela löglærðum aðstoðarmönnum afgreiðslu einfaldari mála í meira mæli en nú er. Hann vill hraða skipulagsbreytingum sem miði meðal annars að því að dreifa betur álagi milli dómenda landsins og rýmka heimildir til að kveða til sérfróða meðdómsmenn til setu í dóma til að mæta þeirri sérkunnáttu sem þörf verði á.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira