Fíladelfíusöfnuðurinn: Samkynhneigðir eru víst velkomnir 30. nóvember 2009 11:42 Kirkja hvítasunnukirkjunnar.
Hvítasunnukirkja Fíladelfíu hefur sent frá sér tilkynningu vegna ásakanna tónlistarmannsins, Friðriks Ómars Hjörleifssonar, þar sem hann hélt því fram að samkynhneigðir væru ekki velkomnir í gospelkór safnaðarins. Tilkynningin birtist hér orðrétt: Í kjölfar þeirrar umræðu sem fram hefur farið í fjölmiðlum að undanförnu er ástæða til að útskýra afstöðu Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu til samkynheigðra. Samkynhneigðir eru velkomnir í Fíladelfíu eins og allir aðrir. Í Fíladelfíu er fólki ekki mismunað eftir kynhneigð eða sett á bása með einum eða öðrum hætti. Þetta er opinber afstaða kirkjunnar og grundvallast hún á náungakærleika og umburðarlyndi því sem Jesús Kristur boðaði og birtist í heilagri ritningu. Gospelkór Fíladelfíu er kirkjukór sem syngur við guðsþjónustur safnaðarins. Meðlimir í Gospelkór Fíladelfíu, eins og aðrir sem gegna þjónustu í kirkjunni, eru virkir safnaðarmeðlimir sem trúa á gildi heilagrar ritningar. Jólatónleikar Fíladelfíu hafa verið haldnir til fjölda ára og verið sendir út í Sjónvarpinu í um áratug. Margir gestir hafa komið fram á tónleikunum í gegnum árin og eru sumir þeirra landsþekktir söngvarar. Tónlistarstjórar Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu hafa haft veg og vanda að skipulagningu, lagavali og vali á þeim gestum sem fram hafa komið. Valið fer fram á faglegum forsendum. Jólatónleikarnir gera Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu kleift að styrkja þá sem minna mega sín í þjóðfélaginu og undanfarin ár hafa Geðhjálp, Hjálpræðisherinn, Kaffistofa Samhjálpar og þúsundir einstaklinga hlotið styrki úr sjóðnum. Stjórn Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu harmar rangfærslur fjölmiðla þess efnis að Friðrik Ómari hafi verið meinað að koma fram á jólatónleikum Fíladelfíu. Það skal áréttað að beiðni þess efnis hefur aldrei komið inn á borð stjórnar Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu. Fyrir hönd stjórnar Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu, Vörður Leví Traustason.
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Fleiri fréttir Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Sjá meira