Óvissu um Lissabonsáttmála ESB lokið 4. nóvember 2009 05:45 Lét sig hafa það Vaclav Klaus var tregur til að undirrita sáttmálann, en lét þó verða af því í gær þegar úrskurður var fenginn frá stjórnlagadómstól Tékklands.fréttablaðið/AP
Vaclav Klaus, forseti Tékklands, undirritaði í gær Lissabonsáttmála Evrópusambandsins, strax eftir að stjórnlagadómstóll Tékklands hafði komist að þeirri niðurstöðu að sáttmálinn bryti ekki í bága við stjórnarskrá landsins. Þar með hafa öll aðildarríki sambandsins staðfest sáttmálann og ekkert er því til fyrirstöðu lengur að hann taki gildi. Klaus var tregur til að undirrita sáttmálann, og ítrekaði í gær að hann væri sannfærður um að Tékkland yrði ekki lengur fullvalda ríki þegar sáttmálinn hefði gengið í gildi. Hann sá sér þó ekki fært annað en að undirrita, þar sem þjóðþing landsins hafði staðfest sáttmálann og stjórnlagadómstóllinn auk þess hafnað því að hann bryti í bága við stjórnarskrána. Töluverð óvissa var um framtíð sáttmálans eftir að Írar felldu hann í þjóðaratkvæðagreiðslu á síðasta ári. Í byrjun október gengu Írar aftur til atkvæðagreiðslu, eftir að Evrópusambandið hafði komið til móts við helstu óánægjuatriðin, og samþykktu þá sáttmálann. Lech Kaczynski Póllandsforseti var, rétt eins og Klaus í Tékklandi, tregur til að undirrita sáttmálann, en gerði það þó í síðasta mánuði eftir að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar á Írlandi varð ljós. Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sagðist óskaplega ánægður með niðurstöðuna. Nú yrði hægt að hraða vali á bæði forseta leiðtogaráðsins og talsmanni utanríkismála, en þetta eru tvö ný embætti sem munu setja svip sinn á Evrópusambandið eftir að Lissabonsáttmálinn tekur gildi. Leiðtogar annarra Evrópusambandsríkja lýstu einnig ánægju sinni með niðurstöðuna í Tékklandi. Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, sem nú fer með formennsku í ráðherraráði sambandsins, sagðist ætla að kalla saman leiðtogafund hið fyrsta, nú þegar óvissan um Lissabon-sáttmálann væri úr sögunni. Lissabonsáttmálanum er ætlað að einfalda ákvarðanatöku í Evrópusambandinu. Hann gengur þó skemmra en stjórnarskrársáttmálinn, sem felldur var í þjóðaratkvæðagreiðslu bæði í Frakklandi og Hollandi. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Sjá meira