Innlent

Íslenskir námsmenn fá styrki

menntamál Menntamálaráðherrar og samstarfsráðherrar Norðurlandanna veittu um 135 milljónir króna á árinu til að styrkja íslenska námsmenn á Norðurlöndum sem eiga í fjárhagserfiðleikum vegna efnahagskreppunnar. Uppfylltu 292 námsmenn skilyrði til að fá styrkinn.

Þrír fengu styrk vegna framfærslu og ferða í iðnnámi en 289 fengu framfærslustyrki. Langflestir þeirra stunduðu nám í Danmörku eða 289. Var þeim veittur framfærslustyrkur í allt að þrjá mánuði. Gert er ráð fyrir að sama upphæð og var í ár verði í boði árið 2010.- vsp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×