Sjálfstæðisflokkur á móti skylduskráningu 16. mars 2009 05:00 Leiðtogar sjálfstæðismanna. Fréttablaðið/stefán
Sjálfstæðisflokkur sker sig frá öðrum flokkum í afstöðu sinni til reglna um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum þingmanna. Hann vill að þingmenn ákveði sjálfir hvort þeir skrái þessar upplýsingar eða ekki. Rætt verður um reglurnar í forsætisnefnd Alþingis í dag. „Þeir sem gefa kost á sér til stjórnmálastarfs hljóta að geta valið um það með hvaða hætti þeir sýna sín fjármál," segir Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður sjálfstæðismanna. Vinstri græn vilja hins vegar að í stað reglna verði sett lög. Brot á þeim yrðu refsiverð. Samfylking telur téð valfrelsi draga úr því gagnsæi sem stefnt er að, og eins Framsókn. Þá vill Samfylking að þingmenn greini frá skuldum sínum líka. Forsætisnefnd sendi flokkunum drög að þessum reglum í mars 2007. Guðbjartur Hannesson, forseti Alþingis, vill ljúka málinu á fundi nefndarinnar í dag, eða í síðasta lagi eftir viku: „Ég ætla rétt að vona að þetta klárist fyrir kosningar, og hef trú á því." Samkvæmt drögunum er þingmönnum leyft að skrá tekjur af störfum utan þings, og stóra eignarhluta í félögum. Þá geta þeir sagt frá stuðningi félagasamtaka, ferðalögum sem greidd eru utan úr bæ og gjöfum, sem geta tengst þingsetu. Einnig frá fjárhagslegu samkomulagi við vinnuveitendur. Makar þingmanna falla ekki undir reglurnar. Upplýsingarnar skal skrá innan mánaðar eftir að nýtt þing kemur saman og gera aðgengilegar almenningi tuttugu dögum síðar. Frjálslyndir veittu blaðinu ekki upplýsingar um sína afstöðu.- kóþ
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Sjá meira