Innlent

Brotthvarf Ingibjargar hefur engin áhrif á framtíðarsamstarf

Steingrímur segir að ákvörðun Ingibjargar hafi komið svolítið á óvart.
Steingrímur segir að ákvörðun Ingibjargar hafi komið svolítið á óvart.
„Þetta kom auðvitað á óvart af þvi að hún hafði kynnt gagnstæða niðurstöðu fyrir stuttu síðan. En ég held að við þessar aðstæður eigi fólk fyrst og fremst að hugsa um sjálft sig, heilsuna og fjölskylduna," segir Steingrímur J. Sigfússon um brotthvarf Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Ingibjörg tilkynnti í dag að hún myndi hætta í stjórnmálum af heilsufarsástæðum. „Og það á bara að virða það. Maður óskar henni bara alls hins besta í því," segir Steingrímur.

Steingrímur sagðist fyrst hafa frétt af brotthvarfi Ingibjargar á blaðamannafundinum, en hann hafi svo sem vitað að það væru einhverjar fréttir í vændum. „Þetta var bara ákvörðun sem hún tók sjálf og kynnti með stuttum fyrirvara," segir Steingrímur.

Steingrímur segir að brotthvarf Ingibjargar hafi engin áhrif á mögulegt samstarf Samfylkingar og VG eftir kosningar. „Nei, það stendur bara eins og það hefur staðið. Við höfum ekkert ákveðið annað en það að þetta samstarf gangi vel og skoðanakannanir lofa góðu um það að þetta gæti verið raunhæfur kostur til framtíðar," segir Steingrímur, en tekur fram að engar ákvarðanir hafi verið teknar. „Við skulum bara sjá hvernig þetta leggst þegar kemur inn í sjálfa kosningabaráttuna," segir Steingrímur og bendir á að næg verkefni séu á borðinu þessa stundina þó svo að ekki sé verið að velta fyrir sér stjórnarsamstarfi eftir kosningar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×