Brotthvarf Ingibjargar hefur engin áhrif á framtíðarsamstarf 8. mars 2009 20:34 Steingrímur segir að ákvörðun Ingibjargar hafi komið svolítið á óvart. „
Þetta kom auðvitað á óvart af þvi að hún hafði kynnt gagnstæða niðurstöðu fyrir stuttu síðan. En ég held að við þessar aðstæður eigi fólk fyrst og fremst að hugsa um sjálft sig, heilsuna og fjölskylduna," segir Steingrímur J. Sigfússon um brotthvarf Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Ingibjörg tilkynnti í dag að hún myndi hætta í stjórnmálum af heilsufarsástæðum. „Og það á bara að virða það. Maður óskar henni bara alls hins besta í því," segir Steingrímur. Steingrímur sagðist fyrst hafa frétt af brotthvarfi Ingibjargar á blaðamannafundinum, en hann hafi svo sem vitað að það væru einhverjar fréttir í vændum. „Þetta var bara ákvörðun sem hún tók sjálf og kynnti með stuttum fyrirvara," segir Steingrímur. Steingrímur segir að brotthvarf Ingibjargar hafi engin áhrif á mögulegt samstarf Samfylkingar og VG eftir kosningar. „Nei, það stendur bara eins og það hefur staðið. Við höfum ekkert ákveðið annað en það að þetta samstarf gangi vel og skoðanakannanir lofa góðu um það að þetta gæti verið raunhæfur kostur til framtíðar," segir Steingrímur, en tekur fram að engar ákvarðanir hafi verið teknar. „Við skulum bara sjá hvernig þetta leggst þegar kemur inn í sjálfa kosningabaráttuna," segir Steingrímur og bendir á að næg verkefni séu á borðinu þessa stundina þó svo að ekki sé verið að velta fyrir sér stjórnarsamstarfi eftir kosningar.
Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Innlent Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Innlent „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Erlent Fleiri fréttir Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent