Erlent

Slasaði 10 manns með Molotov kokteil

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Nítján ára gamall nemandi slasaði 10 manns eftir að hann henti bensínsprengju, eða svokölluðum Molotov kokteil, að framhaldsskóla í Þýskalandi í morgun.

Lögreglan í Þýskalandi sagði, í samtali við N24 fréttastöðina, að maðurinn hafi verið handtekinn, sé slasaður og á leið á sjúkrahús. Atvikið átti sér stað í Carolinum framhaldsskólanum, skammt frá Nurnberg, en um 600 - 700 nemendur eru við nám í skólanum. Þýska lögreglan segir að bæði nemendur og kennarar hafi slasast og að árásarmaðurinn hafi verið nemandi við skólann.

Þýska lögreglan er á varðbergi gagnvart atburðum sem þessum enda er einungis hálft ár síðan að 17 ára gamall piltur, Tim Kretschmer, myrti 15 manns í skotárás í Þýskalandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×