Innlent

Stálu flatskjá en skildu hann svo eftir

Eitt innbrot var tilkynnt til lögreglu í nótt á höfuðborgarsvæðinu en þjófar brutu sér leið inn í raftækjaverslun í austurborginni. Þeir höfðu meðal annars á brott með sér stóran flatskjá sem lögregla fann skammt frá versluninni. Svo virðist sem þjófarnir hafi ákveðið að skilja skjáinn eftir þegar þeir forðuðu sér. Að sögn lögreglu er enn óljóst hve mikil verðmæti mennirnir náðu að hafa á brott með sér. Þeirra er nú leitað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×