Þiggur ekki þriðja sætið - vill baráttusætið 19. mars 2009 11:27 Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, vill skipa baráttusæti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi í komandi kosningum.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, ætlar ekki að taka þriðja sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi fyrir þingkosningarnar 25. apríl. Þess í stað vill hann skipa baráttusæti flokksins. Nái Lúðvík kjöri lætur hann af störfum sem bæjarstjóri. Lúðvík sóttist eftir oddvitasætinu í prófkjöri flokksins en tapaði fyrir Árna Páli Árnasyni. 57 atkvæðum munaði á þeim en 147 atkvæði voru dæmd ógild vegna þess að viðkomandi fundust ekki í félagatali Samfylkingarinnar.Fimmta sætið er baráttusæti Samfylkingarinnar ,,Ég skoðaði alla fleti. Þetta er niðurstaðan og hún er í góðu samráði við mitt fólk," segir Lúðvík aðspurður hvort hann hafi íhugað að taka ekki sæti á framboðslista flokksins. Lúðvík hefur boðist til að skipa fimm sætið eða baráttusæti flokksins. Í kosningunum 2003 og 2007 hlaut Samfylkingin fjóra þingmenn kjörna í Suðvesturkjördæmi.Óánægja með niðurstöðu prófkjörsins Lúðvík segist ekki hafa verið að bjóða sig fram í þriðja sætið. Fáum atkvæðum hafi munað á honum og Árna Páli og tekist hafi verið á um rúmlega 150 atkvæði. ,,Það liggur fyrir að það hefur verið ólga og ósætti í bænum meðal þeirra sem áttu þessu atkvæði. Þá met ég það þannig að það sé skynsamlegast að ég taki þeirri áskorun að bjóða mig fram í baráttusætið til að ná saman okkar liði hér í Hafnarfirði til að keppa af því marki að vinna það sæti," segir Lúðvík og bætir við að fimmta sætið hafi lengi verið keppikefli samfylkingarfólks í kjördæminu. Hættir sem bæjarstjóri nái hann kjöri Lúðvík segir að um tilboð sé að ræða af sinni hálfu sem kjördæmisráð flokksins eigi eftir að taka afstöðu til. Auk þess eigi eftir að samþykja framboðslista flokksins. Lúðvík á inni sumarleyfi sem hann hyggst nýta seinustu vikurnar fyrir kosningar skipi hann baráttusætið. Þá sér Lúðvík ekki fyrir sér að starfa áfram sem bæjarstjóri nái hann kjöri í kosningunum.
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Fleiri fréttir Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Sjá meira