Verðmætt þýfi fannst við húsleit í Reykjavík 8. september 2009 06:00 Skartgripir Í íbúðinni voru heilu skartgripaskrínin, hringar, armbönd, perlufestar, úr og men. Að auki á annan tug fartölva. Verðmætið er talið nema milljónum króna.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann gríðarlega mikið magn þýfis í gær. Karlmaður á þrítugsaldri, sem er af erlendu bergi brotinn, var handtekinn og verður að líkindum farið fram á gæsluvarðhald yfir honum í framhaldinu. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins virðist svo sem stærstur hluti þýfisins sé úr innbrotum á heimili. Þarna voru heilu skartgripaskrínin, hringar, armbönd, perlufestar, úr og men. Einnig á annan tug fartölva, myndavélar og annað sem auðvelt er að koma í verð. Verðmæti munanna er talið hlaupa á milljónum króna. Það var lögreglan á lögreglustöðinni Dalvegi í Kópavogi sem fann þetta mikla magn af þýfi í íbúð í austurborginni. Það var árangur rannsóknar á innbroti inn á heimili í Kópavogi sem átti sér stað síðastliðinn föstudag. Þar var miklum verðmætum stolið. Vísbendingar urðu til þess að ákveðið var að gera húsleit í íbúðinni í gær, þar sem þýfi lá í bunkum, meðal annars munir úr föstudagsinnbrotinu. Maðurinn, sem handtekinn var og sætir nú yfirheyrslum, hefur dvalið í íbúðinni um skeið. Eins og áður sagði virðist sem flestum mununum hafi verið stolið í innbrotum í íbúðarhúsnæði. Eitthvað mun þó hafa verið af þýfi sem augljóslega hafði verið stolið úr verslunum. Má þar nefna ónotaðan kvenfatnað, þar sem í hrúgunum voru margar flíkur af sömu tegund. Sex manns sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna þjófnaðarmála. Um er að ræða tvö meint þjófagengi. Annað þeirra er talið vera viðriðið tuttugu og sex innbrot en lögreglan vinnur að rannsókn á afbrotaferli hins gengisins. Mennirnir sex eru allir af pólskum uppruna. Þýfi Svo virðist sem sá eða þeir sem voru þarna að verki hafi stolið öllu sem hönd á festi, þótt dýru hlutirnir væru áberandi.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Fleiri fréttir Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Sjá meira