Dóttir Gunnars Birgissonar í meiðyrðamál við bæjarfulltrúa 27. október 2009 12:44
Frjáls Miðlun ehf., sem er í eigu Guðjóns Gísla Guðmundssonar og Brynhildar Gunnarsdóttur, dóttur Gunnars Birgissonar, fyrrum bæjarstjóra Kópavogs, hefur stefnt þremur bæjarfulltrúum í Kópavogi fyrir meiðyrði. Alls krefjast hjónin auk Frjálsar miðlunar 11,4 milljóna króna vegna ummælanna. Bæjarfulltrúarnir eru Ólafur Þór Gunnarsson VG, Hafsteinn Karlsson Samfylkingunni og svo Guðríður Arnardóttur sem er einnig í Samfylkingunni. Guðjón og Brynhildur krefjast hæstu bótanna af hálfu Guðríðar eða um sjö milljónir króna vegna ummæla hennar í fjölmiðlum. Þau krefjast þess að Hafsteinn og Ólafur greiði 900 þúsund krónur í miskabætur auk dráttarvaxta. Þá krefjast þau að bæjarfulltrúarnir standi straum af kostnaði vegna birtingar á dómnum í fjölmiðlum. Í stefnu þeirra á hendur bæjarfulltrúanna, sem Vísir hefur undir höndum, kemur fram að Frjáls miðlun krefjist skaðabóta í ljósi þess að umræðan um fyrirtækið hafi haft skaðleg áhrif á fjárhag þeirra. Krefjast þau hárra miskabóta í ljósi þess að eftir umræðuna hafa verkefni fyrirtækisins handa Kópavogi nánast þurrkast upp líkt og það er orðað í stefnunni. Málið má rekja til þess þegar Deloitte tók út viðskipti Frjálsrar miðlunar ehf., við Kópavog eftir að minnihluti bæjarstjórnar hafði gagnrýnt þau harðlega í vor. Gunnar Birgisson var þá bæjarstjóri. Var því haldið fram að viðskiptin væru óeðlileg sökum venslatengsla en í niðurstöðu Deloitte kom fram að bærinn hefði hugsanlega brotið lög varðandi opinber innkaup. Lögmannstofan LEX komst hinsvegar að annarri niðurstöðu þegar Gunnar fól þeim að gera úttekt á sama máli. Fyrirtækið Frjáls miðlun átti í um 50 milljónir króna viðskiptum við bæinn yfir nokkurar ára tímabil. Þegar haft var samband við bæjarfulltrúana vísuðu þau öllum spurningum á lögmann sinn. Ekki náðist í hann við vinnslu fréttarinnar. Málið verður þingfest fyrir héraðsdómi á morgun.
Mest lesið Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Erlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Erlent Fleiri fréttir Lengja opnunartíma í Salalaug Ár liðið frá því síðast gaus á Reykjanesi Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Sjá meira