Fjögurra ára fangelsisdómur Annþórs staðfestur í Hæstarétti 2. apríl 2009 16:51 Annþór Kristján Karlsson.
Hæstiréttur staðfesti í dag fjögurra ára fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Annþóri Kristjáni Karlssyni og tveggja og hálfs árs fangelsisdóm yfir Tómasi Kristjánssyni. Þeir voru dæmdir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið saman, ásamt tveimur öðurm, að innflutningi á rúmu fjögurra og hálfu kílói af amfetamíni og rúmu hálfu kílói af kókaíni frá Þýskalandi til Íslands. Efnin voru ætluð til söludreifingar í ágóðaskyni, en fíkniefnin, sem voru flutt til landsins með hraðsendingarfyrirtækinu UPS, fundust við leit tollgæslu og lögreglu. Var Annþóri gefið að sök að hafa lagt á ráðin um innflutninginn, látið senda fíkniefnin frá Þýskalandi til Íslands og hafa ætlað að móttaka eða láta móttaka þau. Tómasi var gefið að sök að hafa lagt á ráðin um innflutninginn og notað sér aðstöðu sína sem starfsmaður hraðsendingarfyrirtækisins á Keflavíkurflugvelli til að miðla upplýsingum um hvernig haga skyldi sendingu og móttöku fíkniefnanna þannig að þau kæmust til móttakanda efnanna hér á landi án afskipta yfirvalda. Þeir neituðu báðir sök í málinu. Framburðir þeirra þóttu ekki verða lagðir til grundvallar niðurstöðunni, enda ekkert í málinu sem studdi þá. Talið var sannað með framburðum tveggja meðákærðu, sem voru efnislega á sama veg um flesta þætti málsins og nutu stuðnings af gögnum málsins, að Annþór og Tómas hefðu gerst sekir um þá háttsemi sem þeir voru ákærðir fyrir. Voru þeir einnig dæmdir til þess að greiða málsvarnarlauns verjenda sinna, tæpar 400 þúsund krónur.
Tengdar fréttir Annþór laus af Litla Hrauni Annþór Kristján Karlsson lauk afplánun á þriggja ára fangelsisdómi sínum síðast liðinn mánudag og er því laus úr fangelsi. Annþór hlaut þriggja ára dóm fyrir hrottalega líkamsárás þegar hann barði rúmliggjandi mann til óbóta með kylfu. Fyrir verknaðinn sat Annþór inni í tvö ár. Hann var síðan handtekinn fyrir smygl á 5,2 kílóum af amfetamíni og kókaíni í hinu svokallða UPS-hraðsendingarmáli. 9. mars 2009 09:56 Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir „Það þarf ekki nema einn sígarettustubb til þess að kveikja í öllu“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira
Annþór laus af Litla Hrauni Annþór Kristján Karlsson lauk afplánun á þriggja ára fangelsisdómi sínum síðast liðinn mánudag og er því laus úr fangelsi. Annþór hlaut þriggja ára dóm fyrir hrottalega líkamsárás þegar hann barði rúmliggjandi mann til óbóta með kylfu. Fyrir verknaðinn sat Annþór inni í tvö ár. Hann var síðan handtekinn fyrir smygl á 5,2 kílóum af amfetamíni og kókaíni í hinu svokallða UPS-hraðsendingarmáli. 9. mars 2009 09:56