Faðir Grænu byltingarinnar látinn Óli Tynes skrifar 13. september 2009 18:15
Margir sérfræðingar eru þeirrar skoðunar að með grænu byltingunni hafi verið komið í veg fyrir alheims hungursneyð á síðari hluta tuttugustu aldarinnar. Með henni hafi hið minnsta einum milljarði manna verið bjargað frá hungurdauða. Norman Borlaug var fremstur í flokki vísindamanna sem endurbættu nytjajurtir með þeim árangri að matvælaframleiðsla í heiminum meira en tvöfaldaðist á milli 1960 og 1990. Í Pakistan og á Indlandi sem högnuðust hvað mest á nýju plöntunum fjórfaldaðist kornframleiðsla á sama tímabili. Borlaug notaði líftækni til þess að þróa plöntur sem bæði margfölduðu uppskeruna og stóðu af sér sjúkdóma. Þetta átti við um meðal annars korn, hveiti og hrísgrjón. Fyrir framlag sitt hlaut hann friðarverðlaun Nóbels árið 1970. Hann var einnig sæmdur æðsta heiðursmerki sem Bandaríkin veita óbreyttum borgurum fyrir frábæra frammistöðu. Borlaug var níutíu og fimm ára gamall og löngu sestur í helgan stein. Hin síðari ár var hann ákveðinn talsmaður þess að nota erfðatækni til þess að endurbæta nytjajurtir. Hann hafði litla trú á lífrænni ræktun. Bæði væri uppskeran af þeim miklu minni en ella og auk þess væri hún ekki á nokkurn hátt næringarríkari eða betri en hefðbundin framleiðsla. Borlaug sagði að mannkyninu fjölgaði æ hraðar og nauðsynlegt væri að nota öll hugsanlegt ráð til að auka matvælaframleiðsluna í samræmi við það.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira