Peter Taylor: Mancini er einstaklega geðþekkur Elvar Geir Magnússon skrifar 20. desember 2009 13:30 Roberto Mancini.
Fyrsti leikur Manchester City undir stjórn Roberto Mancini verður á öðrum degi jóla þegar liðið leikur gegn Stoke. Sem leikmaður átti Mancini stutta viðveru í enska boltanum en það var með Leicester undir lok ferils hans 2001. Mancini lék einungis fjóra leiki fyrir Leicester en Peter Taylor, knattspyrnustjórinn sem fékk hann til liðsins, segist hafa séð að Ítalinn hefði metnað í að gerast knattspyrnustjóri. „Hann er einstaklega geðþekkur maður og var alltaf spyrjandi spurninga," segir Taylor. „Það var augljóst að hann stefndi á þjálfun og ég er viss um að hann geti gert góða hluti. Aftur á móti kom það mér á óvart að Mark Hughes hefði verið látinn fara." „Þeir eru í sjötta sæti og ég tel það ekki slæma þróun hjá algjörlega nýju liði. Eftir eitt ár væri Mark kannski kominn með liðið á þann stað sem hann ætlaði sér. En því er ekki hægt að neita að ef ferill Mancini á Ítalíu er skoðaður þá lítur hann frábærlega út. Hann er einstaklega viðkunnalegur persónuleiki og leikmenn dýrkuðu hann hjá Leicester á sínum tíma." Mancini stýrði Fiorentina og Inter í heimalandinu en hefur verið atvinnulaus síðan Jose Mourinho var ráðinn í hans stað hjá Inter. Mancini er 45 ára og sem leikmaður var hann sóknarmaður og lék 36 landsleiki fyrir Ítalíu. Renzo Ulivieri, formaður þjálfarasamtaka Ítalíu, fagnar ráðningu Mancini til City. Segir hann þetta viðurkenningu fyrir þjálfaraheiminn á Ítalíu. „Það eru ekki mörg ár síðan ítalskir þjálfarar störfuðu nánast einungis í heimalandinu. Nú eru þeir eftirsóttir um allan heim og sýnir það gæði og sterkan skóla ítalska boltans," sagði Ulivieri.
Enski boltinn Mest lesið Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Handbolti Snorri kynnti EM-strákana okkar Handbolti Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Handbolti „Eitt ótrúlegasta augnablik sem þú sérð í hvaða íþrótt sem er“ Sport Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Enski boltinn Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Handbolti Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Fótbolti Strasbourg - Breiðablik | Tekst Blikum að tryggja sig áfram? Fótbolti Fleiri fréttir Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Moyes ældi alla leiðina til Eyja Bróðirinn sendir Amorim skilaboð: „Frelsið Kobbie Mainoo“ „Besta frammistaða United undir stjórn Amorim“ Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Skemmtilegt fyrir fólkið heima og United verðskuldaði sigur Jafnt í ótrúlegum átta marka leik á Old Trafford Vildi ekki skýra ummælin um verstu 48 klukkutímana frekar Maresca hafi tekið blaðsíðu úr bók Salah og gert sér óleik Guardiola gagnrýndi Foden þrátt fyrir markið „Finnst þér ekki eins og hann sé þjakaður af pressu yfir því hvað hann sé lélegur?“ Fyrirliði Newcastle eftir tapið fyrir Sunderland: „Þetta er svo vandræðalegt“ Sjáðu klaufalegt sjálfsmark Woltemade í grannaslagnum og öll hin úr enska Sjá meira