Réttað í Barðastrandarráni 6. október 2009 12:13
Aðalmeðferð hófst í svokölluðu Barðastrandarmáli nú í morgun en þá fóru tveir ungir menn inn á heimili fullorðins úrsmiðs á Seltjarnarnesi, bundu hann og rændu sjaldgæfum og verðmætum vasaúrum. Barðastrandarmálið er annað að tveimur málum sem komu upp með skömmu millibili fyrr á þessu ári sem áttu það sameiginlegt að brotist var inn á heimili og ráðist á húsráðendur og þeir rændir. Bæði málin vöktu athygli og óhug þegar þeir komu upp enda nánast án fordæma hér á landi. Annað ránið var framið á Arnarnesi en dæmt var í því í júlí. Höfuðpaurarnir fengu tveggja og tveggja og hálfs árs fangelsisdóm. Hitt ránið var framið við Barðaströnd á Seltjarnarnesi í júní en aðalmeðferð í því máli hófst í dag. Fjórir menn eru ákærðir. Tveir fyrir að fara inn á heimili úrsmiðs, einn fyrir að aka ræningjunum og einn fyrir að skipuleggja ránið. Sá heitir Axel Karl Gíslason en hann á að baki langan brotaferil, meðal annars fyrir frelsissviptingu og mannrán, en hann neitar sök. Hinir þrír hafa að mestu viðurkennt sinn þátt í málinu. Úrsmiðurinn á Barðaströnd kom fyrir rétt í dag og lýsti upplifun sinni af ráninu. Hann sagði frá því hvernig annar innbrotsþjófurinn réðst á hann og kýldi hann í andlitið. Hann var þvínæst bundinn á höndum og fótum og hótað að hann yrði spreyjaður með piparúða ef hann hreyfði sig. Úrsmiðurinn er á áttræðisaldri og sagðist hafa óttast um líf sítt þar sem hann lá á gólfinu með hendur bundar fyrir aftan bak. Á meðan fór annar þjófurinn um húsið í leit að sjaldgæfum og verðmætum úrum sem úrsmiðurinn hefur safnað í gegn um árin. Svo virðist sem þjófarnir hafi vitað af þessum verðmætum því þeir höfðu fátt annað á brott með sér. Alls tók ránið einhverjar 15 mínútur en þá höfðu þjófarnir sig á brott en skildu úrsmiðinn eftir bundinn. Hann náði á endanum að losa sig og hringja á hjálp. Hann sagði við dómara í dag að líkamlegir áverkar hefðu jafnað sig fljótt en andlegir eftimálar vær hins vegar umfangsmeiri en hann hefur þurft að leita sér aðstoðar til að vinna sig út úr þessum atburðum. Reynt verður að ljúka aðalmeðferðinni í dag en sakborningarnir mega búast við eitthvað í kring um tveggja ára fangelsi verði þeir sakfelldir.
Tengdar fréttir Einn Barðastrandarræningjanna finnst ekki Marvin Michelsen, einn þeirra sem grunaður er um aðild að ráni á Barðaströnd á Seltjarnarnesi í vor, fer huldu höfði. Aðalmeðferð í máli fjórmenninganna fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Marvin mætti ekki fyrir dóm. Það gerði hann heldur ekki þegar málið var þingfest í haust. 6. október 2009 11:00 Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent Fleiri fréttir „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Sjá meira
Einn Barðastrandarræningjanna finnst ekki Marvin Michelsen, einn þeirra sem grunaður er um aðild að ráni á Barðaströnd á Seltjarnarnesi í vor, fer huldu höfði. Aðalmeðferð í máli fjórmenninganna fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Marvin mætti ekki fyrir dóm. Það gerði hann heldur ekki þegar málið var þingfest í haust. 6. október 2009 11:00