Tryggingagjald látið kosta atvinnuleysið 21. desember 2009 02:30 Af sextíu milljarða tekjum af tryggingagjaldi næsta ár er áætlað að 28,3 milljarða þurfi til að standa undir greiðslu atvinnuleysisbóta úr Atvinnuleysistryggingasjóði.Fréttablaðið/GVA
Tryggingagjöld, sem eiga að skila ríkissjóði um sextíu milljörðum í tekjur á næsta ári, gefa af sér rúma fjörutíu milljarða í ríkissjóð á þessu ári. Tryggingagjöld leggjast ofan á allar launa- og hlunnindagreiðslur til launafólks í landinu. Þau voru 5,34 prósent í byrjun árs, hækkuðu í sjö prósent í sumar og hækka í 8,35 prósent á næsta ári, samkvæmt frumvarpi sem nú er til meðferðar á Alþingi. Tryggingagjöld eru sett saman úr almennu tryggingagjaldi, sem er 4,54 prósent, og atvinnutryggingagjaldi, sem nú er 2,21 prósent en var 0,65 prósent þar til í sumar. Frá áramótum verður atvinnutryggingagjaldið 3,81 prósent. Atvinnutryggingagjaldið rennur í Atvinnuleysistryggingasjóð og stendur undir greiðslu atvinnuleysisbóta. Rökin fyrir þeim hækkunum sem orðið hafa á gjaldinu liggja í því hve mikið atvinnuleysi hefur aukist. Á þessu ári skilaði atvinnutryggingagjaldið rúmum fimmtán milljörðum í ríkissjóð. Útgjöld Atvinnuleysistryggingasjóðs námu hins vegar um 26 milljörðum. Hallinn var brúaður með láni frá ríkissjóði. Með þeirri hækkun í 3,81 prósent af launaveltu í landinu, sem Alþingi er nú með í undirbúningi, er stefnt að því að atvinnutryggingagjaldið skili um 28,3 milljörðum króna árið 2010 og á það að nægja til þess að standa að öllu leyti undir kostnaði við greiðslu atvinnuleysisbóta. Almenna tryggingagjaldið, sem er 4,54 prósent, á að skila um 31 milljarði á næsta ári. Þar af eiga um tuttugu milljarðar króna að renna í almenna lífeyristryggingakerfið. 7,7 milljarðar fara í Fæðingarorlofssjóð en samkvæmt lögum er skylt að láta allt að 1,08 prósentum af tryggingagjaldstofni í þann sjóð. Einnig munu um 2,3 milljarðar renna til lífeyrissjóðanna og jafna milli þeirra byrði af greiðslu örorkulífeyris. Öll þessi verkefni eru stórir þættir í velferðarkerfinu. Að því leyti stingur einn útgjaldapóstur, sem er beintengdur innheimtu tryggingagjalds, í stúf. Staðlaráð, sem hefur sjö starfsmenn og vinnur að því að innleiða staðla í íslensku atvinnulífi, fær sem endranær sína hlutdeild í tryggingagjaldi næsta ár; 0,07 prósent af öllum greiddum launum í landinu munu skila Staðlaráði 50,4 milljónum króna í tekjur næsta ár, samkvæmt frumvarpi til fjárlaga.peturg@frettabladid.is
Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira