Peningahámark í prófkjöri Sjálfstæðismanna 21. október 2009 15:28 Valhöll.
Sjálfstæðismenn í Reykjavík efna til prófkjörs vegna borgarstjórnarkosninga næsta vor 23. janúar næstkomandi. Nokkur nýbreytni verður í áherslum í framkvæmd prófkjörsins en meðal annars verður lagt upp úr því að kostnaður frambjóðanda vegna kynningar fari ekki yfir 1.5 milljón króna samkvæmt tilkynningu. Stjórn Varðar - Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík ákvað á fundi sínum í dag að leggja til við fulltrúaráðsfund, sem haldinn verður mánudaginn 2. nóvember kl. 17.30 í Valhöll, að efna til prófkjörs laugardaginn 23. janúar næstkomandi til að velja frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins vegna borgarstjórnarkosninganna 2010. Stjórn Fulltrúaráðsins samþykkti að leggja til við prófkjörsframbjóðendur að þeir stilli kostnaði við þátttöku sína í hóf og bjóða þeim að nýta þá sameiginlegu kynningu sem Fulltrúaráðið mun standa fyrir. Þá var ákveðið að prófkjörið verði haldið á einum degi en ekki tveimur eins og venja hefur verið undanfarin skipti. Sameiginleg kynning frambjóðenda felur í sér að þeir hafa aðgang að sérstökum prófkjörsvef þar sem þeir geta kynnt sig og sínar áherslur. Þá munu þeir geta haft vinnuaðstöðu í Valhöll og boðið til sín áhugasömum kjósendum til skrafs og ráðagerða. Viðtalstímar við frambjóðendur verða ákveðna daga, bæði í Valhöll og í félagsheimilum sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Sérstakir framboðsfundir verða haldnir til að kynna frambjóðendur, bæði í Valhöll og úti í hverfum. Þetta og ýmislegt fleira sem boðið verður upp á ætti að stuðla að því að frambjóðendur stilli kynningu á eigin vegum og kostnaður fari ekki yfir 1.5 milljón króna.
Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Innlent Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Innlent Fleiri fréttir „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Sjá meira