Mansalsmál: Vinnuveitendur Litháanna í einangrun 21. október 2009 18:23
Litháar, sem eru í haldi vegna rannsóknar á mansalsmáli, störfuðu hjá verktakafyrirtæki hér á landi og hafa íslenskir eigendur þess verið úrskurðaðir í vikulanga einangrunarvist. Annar Íslendinganna á að hafa hringt í lögreglu fyrir starfsmenn sína til að spyrjast fyrir um litháíska stúlku, sem talið er að hafi átt að neyða í vændi á Íslandi. Þrír Íslendingar voru úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í dag, en lögreglan á Reykjanesi telur þá tengjast skipulagðri glæpastarfsemi. Krafist var einangrunarvistar út af rannsóknarhagsmunum. Tveir úrskurðanna hafa þegar verið kærðir til Hæstaréttar á þeim grundvelli að rannsókn lögreglu sé tilhæfulaus. Þriðji úrskurðurinn verður kærður á morgunn. Mennirnir þrír, sem eru á fertugs- og fimmtugsaldri, voru handteknir í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu í gær, en auk þeirra voru tvær konur teknar höndum sem var sleppt eftir yfirheyrslur. Farið var í aðgerðirnar í kjölfar rannsóknar á meintu mansalsmáli, sem upp kom eftir að litháísk stúlka kom til landsins fyrir um tíu dögum. Talið er að hana hafi átt að neyða í vændi. Andlit hennar er skyggt á þessum myndum að ósk lögreglu og fagaðila til að hlífa henni í þeirri erfiðu stöðu sem hún er í. Fimm Litháar hafa verið í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á mansalsmálinu og var úrskurði yfir þeim framlengt um viku í héraðsdómi í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru Litháarnir í vinnu hjá verktakafyrirtæki sem tveir af Íslendingunum reka. Að ósk Litháanna mun annar þeirra hafa hringt í lögregluna á Suðurnesjum til að spyrja um stúlkuna. Þriðji Íslendingurinn, sem var handtekinn á heimili sínu í gærkvöldi, mun ekki tengjast hinum tveimur svo vitað sé. Allir mennirnir þrír neita algerlega að vera viðriðnir málið, en þeim er haldið vegna brots á þremur greinum almennra hegningarlaga sem fjalla um auðgunarbrot, tryggingasvik og mansal, samkvæmt heimildum. Lögreglan á Suðurnesjum segir rannsókn málsins ganga ágætlega, en vildi að öðru leyti lítið tjá sig um málið í dag.
Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Innlent Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Innlent Fleiri fréttir „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Sjá meira