Ríkið borgar auglýsingar á lambakjöti 27. október 2009 03:30 Bústörfin Kjötframleiðsla dróst saman um 3,5 prósent í september frá sama mánuði í fyrra.fréttablaðið/pjetur „
Við eigum í harðri samkeppni við aðrar kjöttegundir og höfum því miður ekki sömu möguleika og sauðfjárbændur á að kynna okkar kjöt því ríkið stendur oft undir kostnaði á auglýsingum og kynningu á lambakjöti.“ Þetta segir Hörður Harðarson, formaður og framkvæmdastjóri Svínaræktarfélags Íslands, en svínakjötsframleiðsla dróst talsvert meira saman en framleiðsla annarra kjöttegunda í september síðastliðnum miðað við september í fyrra. Svínakjötsframleiðslan dróst saman um 15,8 prósent en samdráttur í allri kjötframleiðslu nam 3,5 prósentum. Alifugla- og sauðfjárframleiðsla dróst lítillega saman en nautakjötsframleiðsla jókst. Þá var talsvert meira framleitt af hrossakjöti. Hörður segir erfitt að keppa við auglýsingaherferðir sem kostaðar séu af ríkissjóði. Málið hafi margsinnis verið tekið upp við stjórnvöld, án þess að breytingar hafi orðið á. Landbúnaðarpólitík ráði för. Í fjárlagafrumvarpi næsta árs er gert ráð fyrir að greiðslur vegna sauðfjárframleiðslu nemi tæpum 4,2 milljörðum króna en þar af fara 347 milljónir til markaðsstarfs og birgðahalds. Fjárhæðirnar eru sýnu hærri en í fjárlögum ársins í ár. Útgjöld ríkisins til sauðfjárframleiðslu eru grundvölluð á samningum ríkisins og sauðfjárbænda. Ríkið gerir sambærilega samninga vegna mjólkurframleiðslu en hvorki vegna svínakjöts- né alifuglaræktunar. Fleiri ástæður en auglýsingamál búa þó að baki minni sölu og framleiðslu á svínakjöti, að mati Harðar. Fólk hafi minna á milli handanna, sem skýri samdrátt í heildarkjötframleiðslu síðasta árið en í tilviki svínakjötsins komi líka annað til. „Fjöldi verkamanna er fluttur úr landi aftur til síns heima eftir að stóriðju- og virkjanaframkvæmdum lauk í bili. Uppistaðan í fæðuvali þeirra var svínakjöt,“ segir hann. Svínakjötsframleiðendur mættu aukinni eftirspurn með aukinni framleiðslu en nú hefur dæmið snúist við. Að sögn Harðar hefur svínaflensan ekki haft áhrif á neyslu svínakjöts. Fólk virðist meðvitað um að ekki séu tengsl milli neyslu þess og flensunnar. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Sjá meira