Mótmæla fyrirhugaðri skerðinga til stofanna í Skagafirði 27. október 2009 20:08 Frá Skagafirði. Borgarafundur sem haldin var í dag mótmælir harðlega skerðingu til stofnanna í Skagafirði.
Borgarafundur sem haldinn var á á Sauðárkróki samþykkti ályktun þar sem fyrirhuguðum skerðingum á fjárframlögum til opinberra stofnana í Skagafirði er harðlega mótmælt sem og fækkun þeirra starfa sem af þeim munu leiða. „Er þar sérstaklega átt við boðaðar, en lítt útfærðar, kerfisbreytingar er m.a. varða Sýslumannsembætti og löggæslu á Sauðárkróki og Héraðsdóm Norðurlands vestra, auk harkalegra niðurskurðartillagna er varða Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki og Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra," segir í ályktuninni. Þar segir auk þess að verði áðurnefnd starfsemi sem og önnur opinber þjónusta svo sem menntun, skert eða lögð niður í Skagafirði grefur það undan mikilvægu þjónustuhlutverki svæðisins um leið og það dregur úr fjölbreytni í atvinnulífi á svæðinu, að mati borgarafundarins. „Niðurskurður sem þessi eykur miðstýringu frá höfuðborgarsvæðinu og viðheldur öfugþróun undanfarinna ára þar sem ríkisrekstur blés út á því svæði á meðan umsvif hins opinbera í besta falli stóðu í stað út um land. Nú frekar en nokkru sinni er nauðsynlegt að nýta slagkraft landsbyggðarinnar sem er vel í stakk búin til að koma að endurreisn þeirri sem nú stendur yfir. Í Skagafirði eru fjölmörg sóknarfæri m.a. á sviði undirstöðuatvinnugreina þjóðarinnar. Þannig gæti Skagafjörður ásamt öðrum vaxtarsvæðum landsbyggðarinnar gegnt lykilhlutverki í endurreisn íslensks samfélags." Að lokum eru fulltrúar ríkisvaldsins hvattir til að taka höndum saman við heimaaðila og nýta sóknarfæri svæðisins í stað þess að vega að undirstöðum opinberrar þjónustu.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Fleiri fréttir „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Sjá meira