Franklín Steiner tapaði í Hæstarétti 19. mars 2009 16:41 Sigurjón M. Egilsson, fyrrum ritstjóri Blaðsins.
Sigurjón M. Egilsson fyrrum ritstjóri Blaðsins og Trausti Hafsteinsson blaðamaður voru sýknaðir í Hæstarétti í dag. Franklín Stiner, betur þekktur sem Franklín Steiner, stefndi þeim fyrir ummæli sem féllu um hann í Blaðinu árið 2006. Þar var hann meðal annars sagður mesti fíkniefnasali landsins og að allt hefði verið vaðandi í fíkniefnum á heimili hans. Héraðsdómur hafði áður sýknað þá félaga og ákvað Hæstiréttur að sá dómur stæði óraskaður. Franklín var ennfremur dæmdur til þess að greiða þeim Sigurjóni og Trausta hvorum um sig 200 þúsund krónur til þess að standa straum af málskostnaði fyrir Hæstarétti. Franklín fór fram á að fjöldi ummæla í Blaðinu yrðu dæmd dauð og ómerk. Þau ummæli má sjá hér fyrir neðan fréttina. Hæstiréttur féllst hinsvegar á niðurstöðu héraðsdóms þar sem kom fram að Franklín hafi byggt mál sitt á því að ljóst sé að ummælin séu hreinn uppspuni og þar að auki óviðurkvæmileg, tilhæfulaus og smekklaus og til þess fallin að sverta ímynd stefnanda. Þar segir hinsvegar að öll þau ummæli sem krafist sé ómerkingar lúti að því með einum eða öðrum hætti að Franklín hafi haft vörslur fíkniefna og selt þau og verið umsvifamikill í þeirri sölu. Ummælin snúa öll að atvikum sem gerðust fyrir um áratug og þau vísa öll til Franklíns í þátíð. Sum ummælanna eru sama efnis og birtust um stefnanda í afar ítarlegri grein í tímaritinu Mannlíf árið 1997. Þá sé að finna í dómasafni Hæstaréttar dóma, þar sem stefnandi er dæmdur til þungrar fangelsisvistar, vegna ítrekaðs brots á fíkniefnalöggjöfinni, þar á meðal sölu fíkniefna. „Því sé ekki unnt að fallast á að ummælin séu hreinn uppspuni og tilhæfulaus. Þá er ekki unnt að fallast á að ummæli stefndu séu óviðurkvæmileg og til þess fallin að sverta ímynd stefnanda, þegar fyrir liggur hvaða ímynd hann skapaði sér sjálfur með háttsemi þeirri sem hann hefur verið margdæmdur fyrir," sagði í dómi héraðsdóms.
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Fleiri fréttir Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Sjá meira