Hættuástandi lýst yfir í Bolungarvík að nýju 17. mars 2009 11:10 Frá Bolungarvík.
Veðurstofan í samráði við lögreglustjórann á Vestfjörðum hefur lýst yfir óvissustigi í Bolungarvík og samfara því hættustigi á reit 4 í Bolungarvík. Rýming er hafin. Á reit 4 eru eftirtalin hús: Ljósaland 2, Traðarland 18, 21, 22 og Tröð. Gert er ráð fyrir að umrædd hús verði mannlaus fyrir klukkan tólf á hádegi. Reitur 4 er fyrir neðan Traðargil í Bolungarvík og þar er verið að setja upp snjóflóðavarnargarð sem ekki er tilbúinn og því þarf að koma til rýmingar. Önnur hús í Bolungarvík eru utan reits 4 og því ekki á hættusvæði. Í tilkynningu frá Sýslumanninum á Ísafirði kemur fram að ástæða rýmingarinnar sé skyndileg hlýindi sem gerist hraðar en von hafi verið á og því að von sé á meiri hlýindum og rigningu í nótt. Könnun á aðstæðum í Skálavík, ný náttúruleg flóð þar og niðurstöður sprenginga sýni að veika lagið sé ennþá í hjarninu. Snjóflekinn ofan á því sé mjög þéttur og sé sjálfur sterkur, en ef hann brotni geti farið af stað stórt snjóflóð. Talið er frekar ólíklegt að flóð muni fara af stað á þennan hátt í Traðargili, en ekki er hægt að útiloka að slíkt gerist þegar skyndileg hlýnun veikir flekann. Hér er um varúðarráðstöfun að ræða til að tryggja sem best öryggi íbúa á fyrrgreindum reit 4. Búist er við langvarandi hlákukafla og því er óvíst hvenær hægt verður að aflétta rýmingu. Þar sem hlýnunin er að ganga í garð núna rétt fyrir hádegið er ekki mælt með því að fólk sem býr á rýmingarreitnum dvelji heima hjá sér að borða í hádeginu eða að börn dveljist í húsunum eftir skóla. Ekki er þó neitt því til fyrirstöðu að menn heimsæki húsin og sæki í rólegheitum það sem vantar í dag. Fólk er beðið um að virða ákvarðanir um rýmingu og vera ekki á ferðinni um reit 4 nema í samráði við lögreglu fyrr en hættustigi er aflétt.
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Sjá meira