Innlent

Dómsmálaráðherra kynnti sér starfsemi Landhelgisgæslunnar

Ráðherra kynnti sér starfsemi Landhelgisgæslunnar í dag.
Ráðherra kynnti sér starfsemi Landhelgisgæslunnar í dag.
Dómsmálaráðherra, Ragna Árnadóttir kynnti sér í dag starfsemi Landhelgisgæslunnar ásamt Þorsteini Geirssyni ráðuneytisstjóra, Skúla Þór Gunnsteinssyni lögfræðingi, Jóni Magnússyni skrifstofustjóra auk Elísabetu Jónasdóttur upplýsingafulltrúa.

Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu hófst heimsóknin í stjórnstöð LHG og var því næst kynning í sprengjudeild og sjómælingum og var snæddur hádegisverður í varðskipi Landhelgisgæslunnar. Að loknum hádegisverði fór hópurinn í Springerbát sem flutti þau að æfingu sem stóð yfir með þyrlu LHG TF-EIR og Slysavarnarskóla sjómanna.

Gerðist dómsmálaráðherra og fylgdarlið sjálfboðaliðar í æfingunni og voru hífð um borð í þyrluna sem síðan flutti þau á Reykjavíkurflugvöll en það lauk heimsókninni með kynningu á starfsemi flugdeildar LHG.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×