Útvarpsstjóri tók ekki við glæsilegum pallbíl 13. mars 2009 15:11 „
Þetta er með ólíkindum, hann hljóp í felur," sagði Ástþór Magnússon sem ætlaði að gefa Páli Magnússyni, útvarpsstjóra RÚV, nýjan bíl klukkan tvö í dag. Enginn veitti bílnum móttöku. Bifreiðina ætlaði Ástþór að gefa Páli fyrir hönd Lýðræðishreyfingarinnar en tilgangurinn var sá að vekja athygli á umdeildri bílaeign Páls. En Vísir fjallaði um málið fyrir nokkrum mánuðum. Skemmst er frá því að segja að Páll Magnússon veitti bílnum ekki mótttöku, né nokkur annar hjá Ríkisútvarpinu. Bifreiðin sem Lýðræðishreyfingin hugðist gefa Páli var hin veglegasta; pallbíll af gerðinni Toyota. „Þetta er slíkur skandall að það nær engri átt," sagði Ástþór og bætti við að hann teldi RÚV hunsa Lýðræðishreyfinguna með öllu. Ástþór sagði málið allt áhyggjuefni og bætti við: „RÚV er að bregðast sínu lögboðna hlutverki." Ástþór var vonsvikinn yfir að enginn skyldi hafa veitt bílnum móttöku en hann reyndi einnig að fá fréttastjóra RÚV, Óðinn Jónsson, til þess að taka við bílnum, allt þó án árangurs. Ekki náðist í Pál Magnússon vegna málsins.
Tengdar fréttir Ætlar að gefa útvarpsstjóra nýjan bíl Lýðræðisshreyfingin, með Ástþór Magnússon í farabroddi, ætla að gefa Páli Magnússyni, útvarpstjóra RÚV, nýja bifreið klukkan tvö í dag. Gjöfin verður afhent við höfuðstöðvar Ríkisútvarpsins í Efstaleyti. Ekki er ljóst hverskonar bifreið um er að ræða. 13. mars 2009 12:33 Mest lesið Slævandi lyf og lágt sætisbak dráttarvélar orsakir banaslyss Innlent Stafræn skírteini hætta í símaveskjum Innlent Fær bætur 45 árum eftir föðurmissinn: „Varð eiginlega tíu ára aftur“ Innlent Íbúar leiti réttar síns vegna flautsins: „Þetta er lýðheilsuógn“ Innlent Dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir að nauðga tugum skjólstæðinga Erlent Fyrirsjáanlegar deilur: Valdamesti maður heims og sá ríkasti hnakkrífast Erlent Framtíð kirkjunnar enn óráðin Innlent Ásthildur Lóa skammar þingheim Innlent Reyna að stilla til friðar með símtali Erlent Eldar loguðu í Kænugarði eftir umfangsmiklar árásir Rússa Erlent Fleiri fréttir Löng bílaröð meðan hæðarslá er lagfærð Öllum sagt upp: „Ekkert verið að hugsa um félagsmiðstöðvastarf“ Launahækkunin mun fara í gegn en kerfið endurskoðað í haust Búa sig undir margmenni á Hengil Ultra Ásthildur Lóa skammar þingheim Íbúar leiti réttar síns vegna flautsins: „Þetta er lýðheilsuógn“ Slævandi lyf og lágt sætisbak dráttarvélar orsakir banaslyss Launahækkanir ráðamanna og rifrildi Trumps og Musks í hádegisfréttum Aflýsa óvissustigi vegna norðanáhlaupsins Tveggja ára fangelsi fyrir ofbeldi gegn tveimur konum og karli Aflamark þorsks lækkað og reiknað með að stofninn minnki áfram Fær bætur 45 árum eftir föðurmissinn: „Varð eiginlega tíu ára aftur“ Neitaði að blása í áfengismæli Stafræn skírteini hætta í símaveskjum Mörgu ábótavant við byggingu Brákarborgar Framtíð kirkjunnar enn óráðin Strandveiðisjómenn vilji aftur fá kvóta sem þeir hafi selt frá sér Nýtt slagorð Ísland Duty Free: „Ég er á leiðinni“ Börn verði að fá þau skilaboð að ofbeldi gegn þeim sé aldrei réttlætanlegt Gestum ráðið frá að heimsækja Dettifoss vegna stórrar skriðu Inga Sæland segist vera allt of löt að hreyfa sig Fá Barnaverndarmál leiða til ákæru og Herkastalinn í nýjar hendur Ísland, þvert á flokka boðar til annarra mótmæla Parísarhjólið rís á ný Lögregla fann bakpoka fullan af skilríkjum Braust inn hjá vinsælum hársnyrti og hafði af honum vegabréfið Sérsveitin kölluð út vegna vopnaðs manns Ferðamaður ók húsbíl niður göngustíg Biðjast afsökunar á ummælum björgunarmanns Dómar fólks sem sótti fíkniefni fyrir salann sinn mildaðir Sjá meira
Ætlar að gefa útvarpsstjóra nýjan bíl Lýðræðisshreyfingin, með Ástþór Magnússon í farabroddi, ætla að gefa Páli Magnússyni, útvarpstjóra RÚV, nýja bifreið klukkan tvö í dag. Gjöfin verður afhent við höfuðstöðvar Ríkisútvarpsins í Efstaleyti. Ekki er ljóst hverskonar bifreið um er að ræða. 13. mars 2009 12:33