Þrjú hundruð verk mikilvæg þjóðararfi 26. október 2009 03:30 w
Um 300 listaverk í eigu Íslandsbanka og Nýja Kaupþings eru talin mikilvæg þjóðararfi og eigi því ekki að fara úr ríkiseigu. Þetta kemur, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, fram í mati sem unnið hefur verið á listaverkasöfnunum. Viðræður hafa verið í gangi á milli ríkisvaldsins og bankastjórnanna um verkin og er búist við að málið klárist í næstu viku. Þau listaverk sem mikilvæg þóttu voru sett í tvo flokka, a og b. Í a flokki eru verk sem talin eru mikilvæg fyrir íslenska listasögu. Slík eru talin vera ríflega 100 í Íslandsbanka og nálega 200 í Nýja Kaupþingi. Í flokki b eru verk sem ættu að vera aðgengileg þjóðinni á opinberum stöðum. Um 100 verk í þeim flokki eru í Íslandsbanka og 200 í Nýja Kaupþingi. Þar að auki er fjöldi verka sem ríkið mun ekki ásælast. Samanlagt nema þessir flokkar fimmtungi af listaverkaeign Íslandsbanka og þriðjungi hjá Kaupþingi. Ekki er ætlunin að ríkið kaupi verkin þegar í stað, heldur öðlist kauprétt að þeim. Þá er verið að semja um möguleika á að bankarnir gefi einhver verk. Um þónokkur verðmæti er að ræða, en stuðst verður við bókfært mat verkanna við uppgjör bankanna. Það er þó talið töluvert undir markaðsvirði. Um listaverk Landsbankans gildir öðru máli þar sem hann verður áfram í eigu ríkisins. Þar er að finna stærsta listaverkasafnið í bönkunum þremur. Fjöldi verkanna er slíkur að ríkið á í raun ekki hægt um vik með að geyma þau. Þau eru því talin best geymd þar sem þau eru, í bönkunum, að því gefnu að ríkið eignist kauprétt að þeim. Samið verður við bankastjórnir um að verkin verði reglulega til sýnis. Þar hjálpar hefðin, því bankarnir þykja í gegnum tíðina hafa verið duglegir við að sýna verk sín. kolbeinn@frettabladid.is Kaupþing Í Kaupþingi eru um 200 verk sem talin eru mikilvæg fyrir íslenska listasögu. Samningar hafa staðið á milli ríkisvaldsins og bankastjórna Kaupþings og Íslandsbanka um hvað verður um verkin.fréttablaðið/stefán
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Sjá meira