Fyrrverandi samherjar deila 21. september 2009 04:00 Sarkozy og de Villepin á franska þinginu árið 2006 þegar Sarkozy var innanríkisráðherra en de Villepin forsætisráðherra. fréttablaðið/AP
Í Frakklandi hefjast í dag réttarhöld í máli Nicolas Sarkozys Frakklandsforseta gegn Dominique de Villepin, fyrrverandi forsætisráðherra. Sarkozy sakar de Villepin um að hafa breitt út gróusögur um sig til að draga úr möguleikum sínum til að sigra de Villepin í forsetakosningum árið 2007. Upphaf málsins má rekja aftur til 2004, þegar bæði Sarkozy og de Villepin höfðu sýnt áhuga á að taka við af Jacques Chirac forseta. Sarkozy var þá innanríkisráðherra í ríkisstjórn de Villepins, en þeir eru flokksbræður í UMP, stærsta flokki franskra hægrimanna. Nafn Sarkozys kom fram á lista yfir valdamikla stjórnmála- og viðskiptamenn, sem talið var að hefðu meðal annars þegið mútur fyrir að hafa selt herskip til Taívans árið 1991. De Villepin ákvað að láta rannsaka málið, en skömmu síðar kom í ljós að listinn var falsaður. Dómsmálið snýst um það hvenær de Villepin komst að því að listinn var falsaður. De Villepin segist í einu og öllu hafa farið rétt að og sakar Sarkozy um að vera með málið á heilanum. Verði de Villepin fundinn sekur á hann yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsi og sekt upp á 375 þúsund evrur. - gb
Mest lesið Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Erlent Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Erlent „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Innlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent „Hamfarir og ekkert annað“ Innlent Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki Erlent „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Erlent „Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði Innlent Segir dæmi um að fjölskyldur hafi lokað á fólk vegna BDSM Innlent Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Innlent Fleiri fréttir Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Öfgahægriflokkur mælist stærstur í Þýskalandi Hitamet falla og gróðureldar geisa í Evrópu og víðar Rússar myndu nota Donbas til að ráðast enn lengra inn í Úkraínu Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Sendir frá Norður-Kóreu í „þrældóm“ í Rússlandi Greta Thunberg siglir á ný til Gasa Skoða að stofna viðbragðssveit gegn uppþotum í Bandaríkjunum Hernumin héruð horfi fram á þjóðernishreinsun Vara við afleiðingum samsæriskenninga eftir skotárás á heilbrigðisstofnun Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Smyglaði 850 skjaldbökum í sokkum frá Bandaríkjunum Sjá meira
„Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði Innlent
„Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði Innlent