Miklar skattahækkanir nauðsynlegar 1. september 2009 18:34
Fjármálaráðherra segir óumflýjanlegt að grípa til mikilla skattahækkana til að brúa fjárlagagatið á næsta ári. Fjárlagagerðin er komin á fullt skrið, en ráðherra segir hana aldrei áður hafa verið jafn erfiða. Ríkisstjórnin samþykkti á rúmlega tveggja klukkustunda fundi í morgun fjárlagaramma fyrir næsta ár. Ljóst er að um risavaxið verkefni er að ræða en brúa verður tæplega 60 milljarða króna fjárlagagat - og beita bæði niðurskurði og skattahækkunum. „Þetta er mjög erfitt. Ég held að fjárlagagerð hafi aldrei erfiðari en núna," segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. Ráðherra segir ljóst að grípa verði til sársaukafullra aðgerða til að brúa fjárlagagatið. „Það er alveg ljóst að talsverður hluti af þessu, þó væntanlega minnihluti, verður á tekjuhliðina." Aðspurður hvort hann telji að heimilin í landinu hafi bolmagn til að taka á sig frekari hækkanir sagði Steingrímur: „Það væri ákaflega gott að þurfa ekki að fara í þær hækkanir en við munum reyna sjá til þess að þetta dreifist á þann allra besta hátt sem mögulegt er með hliðsjón af því hvernig aðstæður fólks eru. Við reynum að leggja þetta á breiðari bökin eins og mögulegt er," Fyrir liggur að menntamál verða skorin niður um 7% og heilbrigðismál um 6%. Heilbrigðisráðherra segir ljóst að almenningur muni finna fyrir niðurskurðinum. „Stærðargráðan er slík og vandræðin og erfiðleikarnir sem við stöndum frammi fyrir eru slíkir að það er útilokað annað en að fólk finni fyrir því. Bæði starfsmenn innan heilbrigðisþjónustunnar og þeir sem eiga hennar að njóta þó að við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að verja störfin og verja þjónustuna," segir Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Innlent Enginn meirihluti í Grindavík Innlent Fleiri fréttir „Búinn að vera í löngu atvinnuviðtali hér í bæ“ „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Sjá meira