Þeir sem fóru mjög geyst í góðærinu fái líka aðstoð 1. september 2009 06:00 Gylfi Magnússon segir að það verði að hafa það þótt fólki mislíki að afskrifaðar verði skuldir hjá fólki sem fór allt of geyst í lántöku. Mynd/GVA
Talsmenn ríkisstjórnarinnar hafa talað fyrir sértækum aðgerðum frekar en almennri niðurfellingu skulda heimilanna. Viðskiptaráðherra var spurður hvort ekki mætti óttast reiði meðal almennings þegar afskrifað yrði hjá einum en ekki hinum. Hann segir ekki hægt að finna reglu sem öllum líki við. „En það ætti að vera hægt að finna viðmið sem eru eðlileg og viðunandi fyrir flesta. Það verður auðvitað þannig að einhverjir fá afskrifað sem fólki finnst kannski óverðskuldað, einhverjir sem fóru mjög geyst í uppsveiflunni. Það verður bara að hafa það; ef menn geta ekki greitt er ekki hægt að gera neitt annað en að afskrifa eitthvað af því.“ Ráðherra segir að eflaust finnist einhverjum ósanngjarnt að slíkt fólk fái aðstoð. „En það er ekki hægt að stinga höfðinu í sandinn með það að sumir, því miður allt of margir, skulda meira en nokkur von er til að þeir endurgreiði.“ Hann minnir þó á að tveir þriðju heimila ráði við sínar skuldir. Hann endurtekur orð félagsmálaráðherra hér í blaðinu um að horft verði bæði til veðsetningar og greiðslugetu. Gylfi vill þó ekki slá neinu fram um hvernig fyrirkomulagið verði nákvæmlega. Hins vegar geti, burtséð frá þessu, verið eðlilegt að bankarnir taki sérstaklega á erlendum lánum. „Þeim fylgir gengisáhætta fyrir bankann ekki síður en lánveitandann. Það getur verið akkur í því fyrir bæði lánveitanda og skuldara að þeim sé breytt í íslenskar krónur,“ segir Gylfi. Af húsnæðislánum almennt verði „ábyggilega verulegar afskriftir“. klemens@frettabladid.is
Mest lesið Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri Innlent Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Erlent Fleiri fréttir Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmangsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Sjá meira