Barnaverndarmálum fjölgar um fimmtung 1. september 2009 06:00
Tilkynningum til Barnaverndar Reykjavíkur fjölgaði um 25 prósent fyrstu sex mánuði ársins miðað við sama tíma í fyrra. Fjölda barna sem var tilkynnt um fjölgaði um sautján prósent. Barnavernd Reykjavíkur bárust 2.262 tilkynningar á fyrstu sex mánuðum ársins, en á sama tíma í fyrra höfðu 1.805 tilkynningar borist. Fjöldi barna sem tilkynnt var um var 1.301, en var 1.114 í fyrra. „Það má leiða líkur að því að þetta tengist því efnahagshruni sem varð hér," segir Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur. Hún segir þó að einnig hafi orðið vitundarvakning í barnaverndarmálum og það sé líklega hluti af skýringunni. Frá árinu 2000 hafi verið stöðug fjölgun tilkynninga. Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, tekur í sama streng. „Annars vegar hafa aðstæður og kjör barna versnað og það kemur fram í þessum fjölda. Það má líka vel vera að þetta endurspegli aukna samfélagslega vitund meðal almennings og fagfólks. Svo getur verið að báðar skýringarnar eigi við," segir Bragi. Að sögn Braga er aukningin langmest í Reykjavík, en þó er aukningin talsverð víðast hvar. Hann segir eðlilegt að fjölgunin komi fyrst fram í höfuðborginni, félagsleg samsetning borgarinnar sé slík. „Tilkynningum frá skólum fjölgaði á fyrstu mánuðum ársins og það bendir til þess að það sé ákveðin vanlíðan merkjanleg hjá krökkunum," segir Halldóra. Verulega dró úr tilkynningum til Barnaverndar eftir að skólastarfi lauk í vor. „Það er meira félagslegt taumhald þegar skólarnir starfa," segir Bragi. Hann segist telja líklegt að tilkynningum fjölgi aftur þegar skólarnir fari á fullt. „Þessi þróun er bæði neikvæð, því hún getur falið í sér að það séu fleiri börn í vanda, en hún er líka jákvæð því þetta gefur vísbendingu um styrk samfélagsins. Að íslenskt samfélag sé meðvitað um þarfir barna og það að þau eru núna í mjög viðkvæmri stöðu, og menn láta sig varða um það. Það er ánægjulegt og jákvætt." thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Innlent Fleiri fréttir Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Sjá meira