Alþjóðahúsið hefur ekki uppfyllt samkomulag við borgina 1. september 2009 20:19 Marta Guðjónsdóttir, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er formaður mannréttindaráðs. Mynd/GVA „
Það er mjög einkennilegt að þau skuli vera að ýja að það sé verið að segja upp 14 starfsmönnum af því að það vantar fimm milljónir af 20. Mér sýnist ekki vera mikill rekstrargrundvöllur fyrir Alþjóðahúsið ef að það þarf að segja upp öllu starfsfólkinu þegar vantar fimm milljónir," segir Marta Guðjónsdóttir, varaborgarfulltrúi og formaður mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar, í samtali við fréttastofu. Hún segir Alþjóðahúsið ekki hafa uppfyllt þjónustusamning við borgina. Öllum starfsmönnum Alþjóðahússins var sagt upp í gær en ekki náðist að greiða starfsmönnum laun nú um mánaðarmótin. Katla Þorsteinsdóttir, stjórnarformaður Alþjóðahússins, sagði í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins ástæðuna vera vanefndir Reykjavíkurborgar. Marta segir aftur á móti ástæðuna vera að eftir sé að leggja fram ársreikninga vegna reksturs Alþjóðahúss. „Málið snýst um að þau hafa ekki uppfyllt þennan þjónustusamning. Að sjálfsögðu verðum við að sýna ábyrgð þegar um opinbert fé er að ræða og getum ekki greitt út þessar fimm milljónir fyrr en þau hafa uppfyllt þennan samning." Reykjavíkurborg hefur greitt 15 milljónir af 20 samkvæmt þjónustusamninginum, samkvæmt Mörtu. Næsta greiðsla hafi átti að vera afgreitt í september. Starfsemi hússins skiptast í tvo hluta og segir Marta að þjónustusamningur Reykjavíkurborgar snúi að þeim hluta sem hefur með ráðgjöf til nýbúa að gera. Hinn hlutinn sé íslenskukennsla og túlkaþjónusta sem sé rekinn af einkafyrirtæki sem sé á samkeppnismarkaði. Marta segir að fáeinir starfsmenn sinni ráðgjöf til nýbúa og hún undrist af hverju segja þurfi upp öllu starfsfólkinu þegar uppá vanti fimm milljónir sem fyrirhugað var að borgin myndi greiða í september samkvæmt þjónustusamningnum. Aðspurð hvað gerist næst segir Marta: „Það gerist ekkert annað hjá okkur fyrr en þau uppfylla skilyrði samningsins." 14 starfsmenn starfa í Alþjóðahúsinu. Þeir sinna margvíslegum verkefnum við að þjónusta útlendinga sem búa hér á landi.
Tengdar fréttir Öllu starfsfólki Alþjóðahússins sagt upp Framtíð Alþjóðahúss er í uppnámi eftir að öllum starfsmönnum var sagt upp í gær. Fjarhagsstaðan er það slæm ekki náðist að greiða starfsmönnum laun nú um mánaðarmótin. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 1. september 2009 18:07 Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Fleiri fréttir Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Sjá meira
Öllu starfsfólki Alþjóðahússins sagt upp Framtíð Alþjóðahúss er í uppnámi eftir að öllum starfsmönnum var sagt upp í gær. Fjarhagsstaðan er það slæm ekki náðist að greiða starfsmönnum laun nú um mánaðarmótin. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 1. september 2009 18:07