Orkuveitan býst við að áfrýja dómnum 18. mars 2009 10:55 Hjörleifur Pálsson gerir ráð fyrir að dómnum verði áfrýjað
Forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur gerir ráð fyrir að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem felur í sér að Orkuveitan þarf að greiða Hafnarfjarðabæ 7,6 milljarða króna vegna viðskipta með hlut í HS Orku hf. og HS Veitum hf. Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitunnar, segir að búið hafi verið að gera ráð fyrir stjórnarfundi hjá Orkuveitunni á föstudaginn. Hann geri ráð fyrir að málið verði tekið upp þar og farið verði yfir forsendur dómsins. Hjörleifur segist ekki vera búinn að lesa forsendur dómsins en hann hafi heyrt þær lesnar yfir. „Niðurstaðan kemur mér og öðrum verulega á óvart. Sjálfur geri ég ráð fyrir að við munum láta reyna á þennan dóm fyrir Hæstarétti," segir Hjörleifur. Forsaga málsins er sú að Orkuveitan keypti 16% í HS af Hafnarfjarðarbæ. Samkeppnisyfirvöld töldu að það stæðist ekki samkeppnislög að eiga svo stóran hlut og Orkuveitan þyrfti að minnka hlut sinn niður fyrir 10 %. „Og á sama tíma töldum við að okkur væri ekki heimilt að ganga frá kaupum á 5% í viðbót. Það gæti ekki gengið upp samkeppnislega séð," segir Hjörleifur. Orkuveitan hafi því ekki treyst sér til að ganga frá kaupunum. Dómurinn hafi hins vegar verið á annarri skoðun. Hjörleifur segir að Orkuveitan hafi ákveðið að selja hlutinn og hann sé í söluferli. Komi einhver góður kaupandi og vilji kaupa þessa hluti þá verði þeir seldir. „En þegar við vorum að ganga í þessi viðskipti með Hafnfirðingum að þá vorum við líka að vinna í því að fjármagna kaupin og ef það verður niðurstaða Hæstaréttar að staðfesta dóminn að þá verðum við auðvitað að ganga í það að gera ráðstafanir ef til kemur til þess að við þurfum að borga þetta," segir Hjörleifur. Hann segir þó aðalmálið vera að Orkuveitan ætli sér ekki að eiga þennan hlut. Það standi til að selja hann.
Tengdar fréttir Orkuveitan þarf að greiða Hafnarfjarðarbæ 7,6 milljarða Hafnarfjarðarbær hafði betur í dag í dómsmáli gegn Orkuveitu Reykjavíkur og þarf Orkuveitan að greiða bæjarfélaginu rúma 7,6 milljarða króna auk dráttarvaxta, gegn afhendingu á hlutum í HS Orku hf. og HS Veitum hf., eða Hitaveitu Suðurnesja, auk 1500 þúsund króna í málskostnað. 18. mars 2009 10:08 Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Sjá meira
Orkuveitan þarf að greiða Hafnarfjarðarbæ 7,6 milljarða Hafnarfjarðarbær hafði betur í dag í dómsmáli gegn Orkuveitu Reykjavíkur og þarf Orkuveitan að greiða bæjarfélaginu rúma 7,6 milljarða króna auk dráttarvaxta, gegn afhendingu á hlutum í HS Orku hf. og HS Veitum hf., eða Hitaveitu Suðurnesja, auk 1500 þúsund króna í málskostnað. 18. mars 2009 10:08