Lítið framkvæmt en sjóðirnir óbreyttir 25. júní 2009 04:00 háskólatorg Spara þarf 1,7 milljarða í háskólum landsins og 1 milljarð í framhaldsskólum. Framlag til Lánasjóðsins og rannsóknarsjóða verður óskert. fréttablaðið/stefán
Framlag til rannsóknar- og samkeppnissjóða háskólanna verður ekki skert í yfirvofandi niðurskurði. Menntamálaráðuneytinu er gert að skera niður um 3,7 milljarða króna á næsta ári. Um 1,7 milljarðar verða sparaðir í háskólunum og um 1 milljarður í framhaldsskólum. Þá verður skorið niður um 1 milljarð til menningarmála. Alls mun þurfa að skera niður um 5 prósent í framhaldsskólum miðað við síðustu fjárveitingu, sem var um 20 milljarðar. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er stefnt að því að það náist að nokkru leyti með því að skera niður stofnkostnað og framkvæmdir. Það þýðir í raun að litlar eða engar framkvæmdir verða við framhaldsskólana á næstu tveimur árum, en nokkuð hefur verið kvartað yfir húsnæðiseklu þar á bæ. Það sem eftir stendur í framhaldsskólanum verður skoðað í breyttu skipulagi innan hvers skóla, til dæmis er mjög misjafnt hve mikil yfirvinna er innan skólanna, en ljóst er að hún mun verða skorin niður. Hvað háskólana varðar er lögð áhersla á að framlag til Lánasjóðs íslenskra námsmanna og rannsóknar- og samkeppnissjóða haldist óbreytt. Þeir sjóðir sem um ræðir eru Rannsóknarsjóður, Markáætlun RANNÍS, Tækjasjóður, Rannsóknarnámssjóður og Nýsköpunarsjóður námsmanna. Um 1,4 milljarðar fara í þessa sjóði af þeim 20 sem fóru til háskólastofnana í síðustu fjárlögum. Þar að auki fóru 7 milljarðar króna til Lánasjóðsins. Sé tekið tillit til þeirra fjármuna sem fóru í sjóðina nemur niðurskurður á háskólastigi 5,5 prósentum af fjárveitingunni, en 8,5 sé ekki litið til sjóðanna. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir að unnið verði að sparnaðartillögum í eins mikilli sátt við skólasamfélagið og kostur sé. „Í niðurskurðartillögum okkar reynum við að standa vörð um kjarnastarfsemina. Samfélagið treystir á að framhaldsskólar og háskólar opni dyr sínar og um leið viljum við tryggja áframhaldandi öflugt rannsókna- og nýsköpunarstarf. Af þeim sökum hlífum við samkeppnis- og rannsóknarsjóðum og sama má segja um Lánasjóð íslenskra námsmanna sem verður hlíft við niðurskurði eins og mögulegt er." kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Fleiri fréttir Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum Sjá meira