Erlent

Undirbúa stórsókn gegn talibönum

Óli Tynes skrifar

Pakistanskar orrustuþotur gerðu í dag loftárásir á víghreiður talibana í Suður-Waziristan. Jafnframt tóku fótgönguliðs- og skriðdrekasveitir sér stöðu fyrir stórsókn gen talibönum.

Tuttugu og áttaþúsund hermenn eru sagðir vera í þessu liðí en giskað er á að talibanar hafi um tíuþúsund manns undir vopnum.

Ekki er ljóst hvenær landhernaður byrjar. Háttsettur foringi í hernum sagði í samtali við Reuters fréttastofuna að þeim væri ekki vanbúnaði. Þeir myndu hefja sóknina um leið og fyrirmæli bærust þar um.

Pakistanski herinn hefur þegar brotið á bak aftur hersveitir talibana í Swat dalnum, sem var eitt þeirra helsta vígi. Talibanar hafa svarað fyrir sig með mannskæðum sprengjuárásum á óbreytta borgara.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×